fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Viðar vill leiða Sjálfstæðisflokkinn: Fordæmir ungt fólk, feita, útlendinga, róna, konur, jafnaðarmenn og Kára Stefánsson

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 11. janúar 2018 15:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er harðlínu hægrimaður. Nú horfi ég á ykkur Frosta og Mána og sé strax veikleika þar. Þið eruð báðir með undirhöku og í yfirþyngd sem þýðir það að hugsanlega verið þið veikari fyrr, sem þýðir það að skattborgarinn þarf að borga fyrir ykkur úr okkar sameiginlega sjóð.“

Svo hófst viðtal Viðars Guðjohnsen í Harmageddon í morgun en Viðar býður sig fram til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í vor. Hann sagðist sjá veikleika í augunum á þáttastjórnendum undir eins.

„Það er ábyrgð að vita hvað þú setur upp í munninn á þér, að þú sért ekki að skemma líkamann á kostnað skattborgara. Kári Stefánsson hefur komið hingað, eins og Drakúla í sjónvarpið, og sagt: „Við þurfum að ausa fé í heilbrigðiskerfið. Ausa, komið með meira!“ En lausnin er ekki að finna einhver ný lyf við undirhökum heldur það að breyta lífsstílnum. Ekki að stofna einhverjar stofnanir eða einhver kerfi eða fundarhöld til að leysa undirhökuvandamál eða of breiðar mjaðmir eða klessufeit fólk ,“ sagði Viðar í Harmageddon í morgun.

Viðar sagði að jafnaðarmenn væru illmenni sem vildu gera alla að aumingjum. „Það á að vera svo góður við alla og helst að ná í sjúklinga erlendis frá. Við vitum það að í skýlinu hérna niður í bæ það er orðið allt fullt af útlendum rónum. Þau þurfa ekkert að hugsa um hver borgar, þau kunna ekki á peninga. Það er skattborgarinn. Ryksugum af þeim sem er duglegur,“ sagði Viðar.

Viðar sagði að unga fólkið í dag sé ofdekrað og vafið í bómull. „Það liggur í skólum. Þetta er duldasta atvinnuleysið okkar, að láta fólk hanga skólum. Og hver á að borga skólagjöldin? Jú, skattborgarinn, sá duglegi,“ sagði Viðar.

Hann sagði að alltof margir grunnskólakennarar væru konur. „Það er lausn til á því, að hækka laun karlmanna. Þetta er markaðslögmál, við verðum að bjóða í þá. Þeir eru greinilega eftirsótt vara í grunnskólum. Við getum ekki látið konunnar ráða yfir öllu. Þetta er orðið vandamál, konunnar, femínisminn vill búa til stofnanir sem ala upp börnin. Ég segi ef þið getið ekki haft efni á því að eiga börn eða hafið ekki tíma, þá eigið þið bara ekki að vera að eiga börn. Því ég vil ekki borga fyrir annarra manna börn,“ sagði Viðar.

Viðar sagði að unga kynslóðin sé meira og minna aumingjar. „Ástand unga fólksins líkamlega og andlega orðið mjög slæmt. Þá fer ég að vitna í tölur, það eru að koma núna inn á Landspítalann, inn á þessar geðdeildir, ungt fólk í haugum af því það getur ekki látið símann sinn í friði. Það er engin ábyrgð á því hvernig það glápir á símann,“ sagði Viðar.

Hlusta má á viðtalið við Viðar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus