Suðurlandsvegur í Flóa, móts við Bitru í Árnessýslu, er lokaður vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi sem barst upp úr klukkan átta í morgun. Í tilkynningunni segir að vegurinn verði lokaður um óákveðinn tíma.
Umferð er beint um Urriðafossveg og Villingaholtsveg á meðan. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli.