Umferðarráð Stokkhólms borgar kaus um að setja siðferðisreglur um auglýsingar á götum úti í borginni á fimmtudaginn 14. desember. Reglurnar lúta bæði að kynferðislegum auglýsingum og auglýsingum sem sýna kynþáttamismunun. The Local í Svíþjóð greinir frá þessu.
Daniel Helldén, aðstoðarborgarstjóri Stokkhólms, segir að hann búist við því að tillagan verði staðfest á næsta borgarráðsfundi og að reglurnar taki gildi á næstu tveimur eða þremur mánuðum. Hann segir: „Borgin hefur ábyrgð gagnvart borgurunum um að tryggja að auglýsingarnar sem þeir sjái séu ekki móðgandi eða valdi uppnámi á neinn hátt. Auglýsingar með kynferðis- eða kynþáttamismunun mega ekki sjást. Það er mikilvægt að íbúar Stokkhólms séu öruggir.“
Með þessum nýju reglum mun nefnd á vegum umferðarráðsins meta hvort auglýsingar brjóta í bága við þær. Þá getur nefndin fyrirskipað að viðkomandi auglýsing verði tekin niður innan sólarhrings.
Viðmiðanir um hvað teljast ósæmilegar auglýsingar vegna kynferðis eru þegar til í sænska stjórnkerfinu. Samkvæmt þeim ætti hvorki að sýna konur eða karla einungis sem kynferðislega hluti eða í hlutverki sem telst staðalímynd fyrir það kyn. Slíkt sé niðurlægjandi.
Helldén segir að þessi tillaga hafi verið lengi í burðarliðnum en að #metoo byltingin hafi undirstrikað mikilvægi hennar. „Auglýsingar eru spegill samfélagsins og þar birtist það kynferðislega áreiti sem nú er í deiglunni.“
Anders Ericson, stjórnarformaður Sveriges Annonsörer, sambands auglýsingafyrirtækja, leggst gegn reglunum og segir þær hamlandi fyrir tjáningarfrelsi auglýsenda. „Það yrði hættulegt að staðfesta þessar reglur. Svíþjóð er líklega það land í heiminum sem hefur fæstar kynferðislegar auglýsingar.“ Aðrir, svo sem kvennasamtök í Svíþjóð, hafa bent á að Svíþjóð sé aftast á merinni af Norðurlöndunum í þessum efnum.
Parísarborg setti svipaðar reglur um auglýsingar fyrr á þessu ári varðandi götuauglýsingar. Borgarstjórn Berlínarborgar er nú að íhuga að taka sama skref.