Leirkrús fullt af gullpeningum frá tímum Rómaveldis fannst nýverið undir gömlu bíói í norður-Ítalíu. Peningarnir eru frá 4.öld eftir Krist samkvæmt APF-fréttaveitunni.
Verið var að rífa hús sem byggt var árið 1870 og notað sem leikhús og síðar bíó til að byggja lúxusíbúðir þegar krúsin fannst.
„Fundurinn fyllir mig stolti. Við vitum ekki enn hversu stór fundurinn er í sagnfræðilegu samhengi en þetta svæði er fjársjóður fyrir fornleifafræðinga,“ sagði Alberto Bonisoli, menningarmálaráðherra Ítalíu, á Facebook. Starfsemi á svæðinu hefur verið stöðvuð á meðan fornleifafræðingar fara yfir svæðið.