Þrír dagar liðu frá því að Veronica Paz myrti fyrrverandi kærasta sinn, Diego Armando Gonzalez, þar til hún var handtekin. Þann 10. nóvember, 2003, lokkaði Veronica Diego á afskekkt byggingasvæði með fyrirheitum um kynlíf. Þegar Veronica og Diego voru að kela í bílnum kom vinur Veronicu, Brandan Dante Perry, aðvífandi, dró Diego út úr bílnum og skaut hann tvisvar í andlitið. Ástæða morðsins var afbrýðisemi Veronicu og reiði vegna sambands Diegos við aðrar konur eftir að sambandi þeirra lauk. Veronica og Brandan fengu bæði þunga dóma.