fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Júró-Reynir fann ástina í Finnlandi: „Kynntist þessum líka skemmtilega strák sem kann að kyssa“

Óðinn Svan Óðinsson
Laugardaginn 18. ágúst 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynir Þór Eggertsson, Júró-Reynir eins og hann er jafnan kallaður, hafði starfað sem kennari við Menntaskólann í Kópavogi um árabil þegar háskólinn í Helsinki auglýsti eftir íslenskulektor. Reynir stökk til, sótti um starfið og ekki leið á löngu þar til hann hafði ráðið sig við skólann. Ákvörðunin átti eftir að hafa mikil áhrif á líf Reynis því nú, ári síðar, hefur Reynir fundið ástina og skafið af sér heil 20 kíló.

„Allt gekk þetta eins og í sögu“

„Eftir að hafa kennt um árabil við Menntaskólann í Kópavogi langaði mig til að starfa aftur í háskólaumhverfi og gott fólk hvatti mig til að sækja um stöðu íslenskulektors við Helsinkiháskóla sem losnaði síðasta vetur. Ég var svo heppinn að mér bauðst launalaust leyfi frá stöðunni minni við MK, fékk traustan leigjanda að íbúðinni minni og gat því flust hingað út án þess að brenna allar brýr að baki mér,“ segir Reynir um aðdraganda þess að hann ákvað að flytjast til Finnlands.

Eftir að út var komið gekk allt fljótt og örugglega fyrir sig og áður en Reynir vissi af var líf hans komið í nýja rútínu, í nýju landi. „Ég vissi það eitt að í Finnlandi biði mín skrifstofa, nemendur og tímabundin íbúð á hóteli sem háskólinn rekur. Allt gekk þetta eins og í sögu, ég fann íbúð strax á þriðjudeginum og gat flutt inn á föstudegi,“ segir Reynir.

Fann ástina með hjálp Pyry Soiri

Ekki leið á löngu þar til ástin bankaði á dyrnar hjá Reyni en fljótlega eftir að hann flutti út fór hann að hitta mann. „Haustið leið heldur þægilega, vinnan var skemmtileg og ég kynntist þessum líka skemmtilega strák sem kann að kyssa. Hann heitir Timo og starfar sem sjónvarpsþýðandi úr ensku á finnsku. Við spjölluðum saman á netinu strax eftir að ég kom hingað út, hittumst svo einu sinni í lok ágúst. Síðan leið nokkur tími þangað til við hittumst aftur.“ Það var svo fyrir tilstuðlan íslenska landsliðsins sem Timo og Reynir hittust aftur.

„Það var föstudaginn 6. október, þegar íslenska karlalandsliðið vann Tyrkja í undankeppni HM. Sama kvöld var Finnland að spila við Króatíu og ég sagði við hann eftir að Króatar skoruðu að ef Finnar jöfnuðu myndi ég kyssa hann. Svo tók Pyry okkar Soiri í taumana og þá var kallað eftir kossinum. Við erum eiginlega bara búnir að vera að kyssast síðan,“ segir Reynir en Pyry varð í kjölfarið þjóðhetja hér á landi.

Erfið veikindi

Fljótlega eftir þetta kom Reynir til Íslands í frí yfir jólin. Hann hafði ekki verið lengi hér á landi þegar hann fór að finna fyrir miklum verkjum í baki. „Ég fékk slæman bakverk nokkrum dögum fyrir jól sem svo fór að leiða niður í fót og líðanin versnaði dag frá degi. Þetta var mjög sársaukafullt, fyrst í mjóhryggnum en svo komu verkir niður í fótinn og mikill doði, alveg frá klofi og niður úr. Sársaukinn er í raun ekki aðalmálið heldur það hvernig maður missir mátt og stjórn á líkamanum. Því fylgir auðvitað mikil hræðsla. Fyrst vill maður ekkert vita af þessu, reynir að útiloka að þetta geti verið að gerast en loks getur maður ekkert lokað augunum lengur og þá þarf maður bæði að að hafa kjark og raunsæi til að takast á við það sem er að gerast um leið og maður berst við hræðsluna um að þetta sé varanlegt ástand, sem bara muni versna,“ segir Reynir.

Reynir leitaði oft til læknis áður en hann gafst upp á heilbrigðiskerfinu hér á landi og fór aftur til Finnlands. „Ég flaug aftur út 8. janúar en þá var ég búinn að fara fjórum sinnum til læknis, fyrst á heilsugæslustöð og svo þrisvar á bráðamóttökuna. Þar varði ég mörgum klukkustundum en aldrei var ég nógu veikur til að neitt væri gert fyrir mig. Ég ákvað að lokum að redda hjólastólum á flugvöllunum og fljúga heim til Finnlands og sjá hvort betur yrði tekið á móti mér hér.“

Þegar til Finnlands var komið fékk Reynir loks þá þjónustu sem hann þurfti. „ Ég var ekki búinn að bíða í korter á bráðamóttökunni í Finnlandi þegar ég hitti hjúkrunarfræðing og innan 90 mínútna var ég kominn í innlögn. Ég var sendur á annað sjúkrahús í segulómskoðun rétt um miðnætti og klukkan 5 að morgni var búið að ákveða að skera mig upp klukkan 8,“ segir Reynir sem hrósar þeirri þjónustu sem hann fékk í Finnlandi í hástert.

„Ég hóf svo störf aftur í lok febrúar og það var auðvitað ekki alltaf létt en ég fékk að forgangsraða kennslutengdum störfum og láta annað sitja á hakanum, svo þetta reddaðist allt. Ég er enn að vinna í því að ná fullri heilsu og stjórn á hægri fæti og fer í sjúkraþjálfun og hleyp í sundlauginni.“

Breyttur lífsstíll þökk sé bílleysi

Þrátt fyrir þessi erfiðu veikindi segir Reynir lífið í Finnlandi hafa farið vel með hann, ekki hvað síst líkamlega, en frá því að hann fluttist út hefur hann losað sig við 20 kíló. „Þessir búferlaflutningar hafa verið mikil lífsstílsbreyting. Í fyrsta lagi á ég ekki bíl hér í Helsinki. Í staðinn nota ég almenningssamgöngur, aðallega sporvagna en líka stundum strætó og metró. Í sumar hef ég líka notað borgarhjólin aðeins. Þetta þýðir að ég geng alltaf aðeins meira en heima; hver ferð krefst aðeins meiri hreyfingar. Ferðirnar verða líka fleiri, þar sem maður getur borið minna í hvert sinn, til dæmis þegar maður verslar. Þá freistast ég heldur ekki til að stoppa í lúgusjoppu og fá mér pylsu eða eitthvað annað. Það að almenningssamgöngur virki vel hér í Helsinki þýðir að bíllaus lífsstíll er raunhæfur möguleiki fyrir venjulegt fólk. Ekki nóg með að heilsan batni við aukna hreyfingu, heldur er bílleysið stærsta einstaka kaupmáttaraukningin sem ég hef fundið fyrir við það að flytja hingað,“ segir Reynir að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala