Kynjajafnrétti hér á Íslandi er til umræðu í nýjasta þætti áströlsku þáttaraðarinnar Dateline. Í þættinum sem sjá má í heild hér að neðan ræðir þáttastjórnandinn Janice Petersen við fjölda einstaklinga hér á landi um jafnrétti kynjanna. Þátturinn hefur fengið misjafnar viðtökur og ef marka má kommentakerfi Youtube eru margir hverjir afar ósáttir við aðferðir Íslendinga.
Í þættinum heimsækir Janice Petersen Hjallastefnuleikskóla og ræðir við Margréti Pálu Ólafsdóttur, stofnanda skólans. Þar sýnir hún hvernig skólinn vinnur að því að eyða staðalímyndum kynjanna. Stelpur eru sýndar úti að leika sér í mold á meðan strákarnir eru inni að þjálfa nánd. Í þeirri þjálfun er strákarnir látnir snerta hvorn annan til að finna fyrir nánd. Þá fá strákarnir tækifæri til að lakka á sér neglurnar. Á sama tíma eru stelpurnar að negla nagla í spýtur.
Margrét Pála segir mikilvægt að brjóta niður staðalímyndir og það að naglalakka stráka er liður í því. „Við erum einfaldlega bara að kenna þeim að þeir geti verið fallegir. Það er ekkert í þessum heimi sem er bara fyrir stelpur. Ekkert,“ segir Margrét. Hjallastefnan fær nokkuð hrós í þættinum sjálfum en erlendis eru notendur Youtube að missa sig og finnst ekki mikið til þessara aðferða koma.
Eins og áður segir hafa viðtökur við þættinum verið misjafnar og ganga sumir netverjar svo langt að saka Íslendinga um ofbeldi gagnvart börnum á leikskólum Hjallastefnunnar. Við tókum saman brot af þeim ummælum.
Margrét Pála hefur eins og áður segir verið óhrædd að hrista upp í kerfinu og reyna nýjar hugmyndir þegar kemur að umönnun barna á leikskólum. Hefur Hjallastefnan gert ýmsar tilraunir þegar kemur að kynhlutverkum. Sem dæmi má nefna að á síðasta ári sniðgekk Hjallastefnan texta í jólalögum og breytti mörgum þeirra. Í samtali við Vísi á þeim tíma sagði Margrét Pála:
„Jafnrétti er hugsjón okkar í Hjallastefnuskólunum og þess vegna syngjum við alltaf „Adam átti syni sjö“ og við syngjum líka og stundum á undan „Eva átti dætur sjö.“ Við sleppum lögum og ljóðum sem eru með þessum kynbundnu tilvísunum eins og um Sigga á síðum buxum og Sollu í bláum kjól. Hvernig stelpurnar vagga brúðu og strákarnir sparka bolta. Við bara sleppum þessu, það er svo margt skemmtilegt til.“
Og það er þetta sem virðist fara fyrir brjóstið á fólki erlendis sem finnst það að leyfa stelpum að fá hamar og naglalakka drengi og strjúka þeim blíðlega sé ofbeldi og níðingsskapur.