Stefnir Snorrason bráðatæknir birtir á Facebook-síðu sinni átakanlega frásögn af því sem hann varð vitni að í gær eftir bíóferð í Kringluna. Þar varð hann vitni að, að því er virtist, heimilislausum manni sem reyndi að sofa á gangi Kringlunnar.
„Þessi sjón blasi við mér í kvöld er ég kom úr bíó verslunarmiðstöðvar einnar í Reykjavík. Ég tók mynd af þessu, því ég varð smá hissa að ekki séu betri úrræði árið 2018. Ég kunni nú samt ekki við annað en að pikka í kauða og spyrja hvort ekki væri allt í lagi, til að minnsta kosti athuga hvort hann væri lífs eða liðinn greyið. Hann taldi sig vera í lagi, var bara að reyna að sofa. Hælisleitendur fá hlýjan náttstað hér og er það sjálfsagt, en okkar eigið fólk er á götunni og við gerum ekki betur?! Sorglegt,“ skrifar Stefnir.
Í samtali við DV segir Stefnir að það verði að hjálpa fólki sem hefur engin hús að venda. „Gistipláss verða að vera að minnsta kosti fleiri en heimilislausir svo að allir hafi í hús að venda. Mér finnst þetta bara dapurlegt þess vegna setti ég þetta á vegginn minn. Ég veit að Konukot og kvennaathvörf hafa einhver pláss og kannski ekki nóg af þeim en ég veit líka að karlmenn hafa ekki komist að í Gistiskýlinu við Lindargötu vegna plássleysis. Kannski þess vegna hallar fólk sér á göngum verslunarmiðstöðva um ellefu á kvöldin,“ segir Stefnir.
Hann segir að eiginkona sín hafi orðið vitni af svipuðu á dögunum. „Fyrir tveimur vikum gekk kona mín og dóttir fram hjá verslunarkjarna í borginni. Þar kom kona að þeim frekar illa til reika og tjáði þeim um veikindi sín og barna sinna sem þurftu fæði. Hún var sem sagt að betla, og það í Reykjavík. Konan mín fór og verslaði fyrir hana brauð mjólk, smjör og ost, en svo var konan farin er þær komu út með varninginn,“ segir Stefnir.
Hann segir að fólki verði stundum að skoða nærumhverfi sit. „Sveitarfélögin gætu hugsanlega látið kostnað nokkurra kokteilboða og þess háttar renna óskipt í sjóð fyrir þá sem minna mega sín. Þau eru enn þá okkar hold og blóð, svo lítum okkur nær. Ég hef séð fólk sofa í ruslageymslu með nokkra svefnpoka og teppi, allskonar rusli, í bullandi kulda og skafrenningi bak við hús á Laugavegi. Ömurlegt.“