fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Svona varð Norður-Kórea kjarnorkuveldi

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 14. maí 2018 18:00

Kim Jong-un stýrir með harðri hendi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti mun funda með Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, á næstunni. Ekki hefur enn verið upplýst hvenær eða hvar en það hlýtur að skýrast á næstunni. Tilefni fundarins er deilur Bandaríkjanna og Norður-Kóreu vegna kjarnorku- og eldflaugatilrauna þeirra síðarnefndu. Kim Jong-un erfði völdin í Norður-Kóreu þegar faðir hans lést og er hann þriðji ættliðurinn til að stýra þessu einangraða ríki sem ógnar heiminum með kjarnorkuvopnum og kúgar sveltandi almúgann.

En hvernig verður ríki eins og Norður-Kórea til og af hverju þróaðist stjórnarfarið þar eins og það gerði?

Leiðtogar Norður-Kóreu hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á að einangra landið frá umheiminum. Þeir hafa náð að blinda þjóðina í gegnum tíðina þannig að einræðisstjórnin hefur getað styrkt stöðu sína og alræðisvöld. Að mestu er gert út á þá hugsun að umheimurinn allur sé á móti Norður-Kóreu og að eina leiðin til að tryggja tilvist ríkisins sé að eiga ógnarsterkan her. Út á þetta gengur stór hluti þeirrar innrætingar sem á sér stað í landinu.

Norður-Kórea er einnig afurð langrar og blóðugrar sögu sem teygir sig langt aftur í tímann. Svo langt að ekki var þá sjáanlegt að Kóreu yrði skipt í tvö ríki. Stórveldin, þar á meðal Bandaríkin, komu mikið við sögu þegar Norður-Kórea varð til og eiga því hlut að máli. Kóreuskaginn hefur lengi orðið fyrir áhrifum af valdabaráttu stórveldanna.

1912 fæddist Kim Il-sung, afi Kim Jong-un. Japanir réðu þá lögum og lofum í Kóreu.

Blóðug fortíð

Kóreuskaginn liggur mitt á milli þriggja sögulegra stórvelda og það hefur sett sitt mark á landið. Fortíðin er blóðug og Kórea var oft átakasvæði. Sem dæmi má nefna að 1231 eru Mongólar sagðir hafa ráðist inn í Kóreu og þar með hófst stríð sem stóð í 39 ár og kostaði um 200.000 manns lífið.

Á næstu öldum dróst Kórea oft inn í átök og deilur nærliggjandi stórvelda. Þrátt fyrir ótal innrásir, sérstaklega Japana og Kínverja, tókst Kóreu að halda velli sem þjóðríki. Öll þessi átök og deilur urðu til þess að Kórea einangraði sig frá umheiminum og frá því á sautjándi öld og fram á þá tuttugustu var landið nær einangrað.

Í upphafi tuttugustu aldarinnar var Japan rísandi stórveldi og hafði mikinn áhuga á Kóreu og náttúruauðlindunum þar. Japanir lögðu Kóreu undir sig fyrir framan nefið á Kína og Rússlandi. 1919 gerðu Kóreubúar uppreisn gegn Japönum en sú uppreisn var bæld niður á grimmdarlegan hátt.

Landsmenn voru neyddir til að taka upp japönsk nöfn, kóreska var bönnuð í skólum og öll kennsla var á japönsku.

Í síðari heimsstyrjöldinni hélt kúgunin áfram og um hálf milljón Kóreubúa var neydd til að vinna í japönskum verksmiðjum og taka þátt í bardögum. Allt að 200.000 konur voru neyddar til vændis og voru til reiðu fyrir japanska hermenn.

Þegar Kim Il-sung lést 1994 tók sonur hans, Kim Jong-il, við stjórnartaumum. Enn hafði ekki tekist að þróa kjarnorkuvopn.

Upphafið

1912 fæddist Kim Il-sung, afi Kim Jong-un. Japanir réðu þá lögum og lofum í Kóreu. Kim Il-sung ólst upp við að Japan væri óvinurinn. Hann fékk áhuga á kommúnisma og gekk til liðs við skæruliðahópa sem börðust gegn Japönum, þar á meðal hóp sem var stýrt af kínverska kommúnistaflokknum.

Hann komst til metorða og stýrði skæruhernaði í hernuminni Kóreu. Hann varð þó að flýja til Sovétríkjanna 1940 og varð liðsforingi í Rauða hernum.

Þegar síðari heimsstyrjöldinni lauk höfðu Sovétríkin og Bandaríkin herlið í Kóreu. Sovétríkin í norðurhlutanum og Bandaríkin í suðurhlutanum. Sovétmenn völdu Kim Il-sung sem fyrsta leiðtoga norðurhlutans en Bandaríkjamenn völdu and-kommúnistann Syngman Rhee sem forseta í suðurhlutanum.

1950 braust Kóreustríðið út en 1953 var samið um vopnahlé sem enn stendur því aldrei hefur verið samið um frið.

Samið var um að landamæri ríkjanna yrðu þau sömu og þau voru fyrir stríð. En stríðið hafði kynnt vel undir fjandskap á milli suður- og norðurhlutans.

Að stríði loknu byrjaði Kim Il-sung að byggja Norður-Kóreu upp eftir eigin höfði og lagði grunninn að einræðisríkinu eins og við þekkjum það í dag. Hægt og örugglega losaði hann sig undan sovéskum og kínverskum áhrifum og náði að viðhaldi jafnvægi í samskiptum við þessi tvö stórveldi. Þannig náði hann að tryggja sjálfstæði Norður-Kóreu. Hann byggði upp eins flokks kerfið og kom á öfgakenndri persónudýrkun. Til að forðast of mikil áhrif frá Sovétríkjunum og Kína var Juche-hugmyndafræðin þróuð en hún á rætur í kínverskum konfúsíusisma og sovéskum stalínisma. Með þessu komst Kim Il-sung hjá því að halla sér of mikið að öðru hvoru stórveldanna.

Hann stýrði landinu með harðri hendi. Gagnrýnendur voru teknir af lífi, herinn var byggður upp og persónudýrkunin var algjör. Kim Il Sung var næstum því guð í augum landsmanna. Þetta á enn við í dag um Kim Jong-un þar sem vægðarlaus áróður er rekinn þar sem hann er hafinn upp til skýjanna og nánast settur í guðatölu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti mun funda með Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, á næstunni.

Treysti engum

Kim Il-sung ákvað að koma sér upp kjarnavopnum þar sem hann óttaðist Bandaríkin og treysti ekki Kínverjum eða Rússum. Hann vildi eingöngu treysta á sjálfan sig. Allt snerist um að tryggja tilvist landsins og það gera kjarnorkuvopn. Þau senda einnig þau skilaboð til Kína og Rússlands að þau ráði ekki málum í Norður-Kóreu.

Hvorki Kína né Sovétríkin vildu aðstoða við framleiðslu kjarnorkuvopna svo málin gengu hægt fyrir sig en bæði ríkin vildu aðstoða við þróun kjarnorku til friðsamlegra nota. 1952 var kjarnorkustofnun Norður-Kóreu opnuð.

Þegar Kim Il-sung lést 1994 tók sonur hans, Kim Jong-il, við stjórnartaumum. Enn hafði ekki tekist að þróa kjarnorkuvopn. Hann hélt óbreyttri stefnu um að herinn gengi fyrir í öllu og viðhélt algjörri einangrun landsins frá umheiminum. Ekki var hvikað frá þessari stefnu þrátt fyrir miklar náttúruhamfarir og hungursneyð. Einræðisstjórnin telur að „aðeins“ nokkur hundruð þúsund landsmenn hafi soltið í hel en aðrar heimildir segja að um milljónir hafi verið að ræða.

Í kringum aldamótin var staðan í landinu alvarleg og Kim-fjölskyldan hafði áhyggjur af eigin tilvist sem og Norður-Kóreu. Kim Jong-il vissi að kjarnorkuvopn eru nauðsynleg til að hræða óvini og halda þeim fjarri. Nú var allt lagt undir til að þróa kjarnorkuvopn og almenningur var látinn svelta heilu hungri.

2006 tilkynntu stjórnvöld í Norður-Kóreu að þeim hefði tekist að sprengja kjarnorkusprengju og nú var landið orðið áttunda kjarnorkuveldi heims.

Sérfræðingar telja að nú eigi Norður-Kórea nokkrar kjarnorkusprengjur en óljóst er hvort langdrægar eldflaugar þeirra geti borið kjarnaodda. Það að eiga kjarnorkusprengjur hefur tryggt Norður-Kóreu viðræðum við umheiminn sem getur ekki látið eins og ekkert sé.

Kim Jong-un er með bestu spilin eins og málin standa nú. Hann hefur engan áhuga á að til átaka komi og hvað þá til kjarnorkustríðs því hann veit að það jafngildir sjáfsvígi. Hann vill tryggja stöðu sína við samningaborðin hjá alþjóðasamfélaginu og tryggja tilvist sína og Norður-Kóreu þar sem hann getur áfram farið sínu fram og níðst á þjóð sinni til að halda völdum um leið og rödd Norður-Kóreu heyrist á alþjóðavettvangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu