Rafal Kiedowski hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum en hann er sakaður um að hafa fróað sér opinberlega víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2013 til 2017. Margir urðu vitni að atferli hans, þar á meðal ung börn.
Rafal er sakaður um að hafa fróað sér buxnalaus í aftursæti bifreiðar, með opna hurð, þar sem henni var lagt í bifreiðastæði við hjúkrunarheimilið Hrafnistu í Reykjavík. DV hefur rætt við eina kvennanna sem varð vitni af því atviki. „Hann var fyrir utan vinnuna mína einn morguninn. Það var opin hurð á bíl og ég sá naktar karlmannslappir og leit mjög snöggt undan,“ segir konan.
Rafal er sakaður um að hafa fróað sér opinberlega á samtals fimm öðrum stöðum. Árið 2013 sást til hans að fróa sér í undirgöngum að Jörfabakka 22-28. Ári síðar var hann gómaður tvisvar, við byggingarsvæði í Kópavogi, þar sem barn varð vitni að Rafal að rúnka sér, og svo aftur við Þjóðmenningarhúsið við Ingólfsstræti.
Árin 2015 og 2016 sást ekkert til Rafal að fróa sér opinberlega en í fyrra náðist hann fjórum sinnum. Fyrst við Hrafnistu líkt og fyrr segir en svo við Hvaleyrarvatnsveg í Hafnarfirði. Þá, líkt og við Hrafnistu, var hann nakinn í aftursæti bifreiðar. Að lokum urðu tvær 17 ára stúlkur vitni af honum að fróa sér á almannafæri utandyra milli Sambíóanna og Landsbankans að Álfabakka. Síðar það sama kvöld sáu tvær 15 ára stúlkur hann fróa sér skammt frá á göngustíg við Arnarbakka.
Rafal er auk þess ákærður fyrir fjölda annarra brota, öll vegna þjófnaðar eða umferðarlagabrota.