Um kvöldmatarleytið í gær var tilkynnt til lögreglu um ölvaðan mann fara inn í íbúðarhúsnæði við Skipholt og vildi maðurinn ekki fara þaðan út. Maðurinn mun einnig hafa verið að ganga í akbrautum móti umferð. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð og síðar vistaður vegna ástands í fangageymslu lögreglu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir einnig frá því að á tíunda tímanum í gærkvöld var tilkynnt um eld við Óðinsgötu. Þar var maður handtekinn, grunaður um íkveikju og var hann vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu.
Á fimmta tímanum í morgun var tilkynnt um eld í húsi við Boðagranda. Eldurinn var í eldhúsi og var slökktur fljótt. Reykræsta þurfti húsið og er ekki vitað hvort íbúar hafi þurft aðstoð.