Jón Valur Jensson telur sig hafa fundið lausn til að koma í veg fyrir að fangar reyni að strjúka úr fangelsum. Jón Valur ræddi málið við Pétur á Útvarpi Sögu og flutti þar ljóð í beinni sem hljóðaði svo: Strokuföngum fjölgar ótt, frelsið þrá að vonum. Inniluktum yrði rótt, ættu þeir völ á konum. Liðugum, í stráka stað, á stuttbuxum við tennisleik; breysku hjörtun bræðir það, en bannað þó að enda´ í sleik! Jón Valur útskýrði svo boðskapinn á þessa leið fyrir hlustendum: „Þetta er óformleg tillaga, spurning hversu alvarlega meint, um að þeir fái sendar konur til að spila tennis við sig úti í fangelsisgarði,“ sagði Jón Valur og bætti við: „Þá mundu þeir hætta að reyna að strjúka.“