fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Óvinir Íslands

Þeim er ekkert sérstaklega vel við okkur og okkur ekki við þau – Gordon Brown, Paul Watson og Suðurríkjapresturinn sem segir Íslendinga bastarða

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. febrúar 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðganir, lítilsvirðing og léleg framkoma. Íslendingar hafa eignast sinn skerf af óvinum í gegnum árin af ýmsum ástæðum. Við erum staðföst þjóð, látum ekki vaða yfir okkur á skítugum skónum og eigum það til að móðgast þegar okkur finnst að okkur vegið. Hér eru taldir upp þeir sem teljast eða hafa talist til óvina Íslands á undanförnum árum og áratugum. Þetta eru allt einstaklingar sem hafa á einhverjum tímapunkti komið illa fram við eitthvert okkar; móðgað eða lítillækkað okkur eða vegið með einhverjum hætti að íslensku þjóðinni.


Gordon Brown

Af hverju? Setti á okkur hryðjuverkalögin

Staða: Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands

Íslendingar munu aldrei gleyma þeirri ákvörðun Gordons Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, að setja hryðjuverkalög á Ísland eftir bankahrunið 2008. Setti hann þar með Ísland í hóp með talíbönum og al-Kaída. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, komst ágætlega að orði í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina árið 2013 þegar hann sagði að jafnvel þegar Bretar verði búnir að gleyma Brown muni Íslendingar muna vel eftir honum. Ákvörðunin um að setja Ísland á lista með hryðjuverkasamtökum verði honum og ríkisstjórn hans til skammar um aldur og ævi.


Mynd: Mynd: Reuters

Paul Watson

Af hverju? Sökkti tveimur hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn

Staða: Stofnandi Sea Shepherd

Kanadamaðurinn Paul Watson hefur á undanförnum áratugum gert Íslendingum lífið leitt. Watson, sem er stofnandi Sea Shepherd, bar ábyrgð á því að sökkva tveimur hvalveiðiskipum, Hval 6 og Hval 7, við Ægisgarð í Reykjavík árið 1986. Þá voru skemmdir unnar á hvalkjötsvinnslunni í Hvalfirði. Þessar gjörðir Pauls vöktu reiði meðal Íslendinga sem eru ekki búnir að gleyma spellvirkjum aðgerðasinnans. Paul, sem verður sjötugur innan fárra ára, hefur ítrekað gagnrýnt Íslendinga fyrir hvalveiðar á undanförnum árum.


Santiago Ponzinibbio

Af hverju? Potaði í augun á Gunnari Nelson

Staða: UFC-bardagakappi

UFC-bardagakappinn Santiago Ponzinibbio er ekki hátt skrifaður hjá íslensku þjóðinni eftir að hafa beitt bellibrögðum til að leggja Gunnar Nelson. Kapparnir mættust í fyrrasumar og mátti Gunnar sætta sig við tap eftir rothögg í 1. lotu. Síðar kom á daginn að Ponzinibbio potaði ítrekað í augu Gunnars meðan á bardaganum stóð. Okkur þótti illa farið með okkar mann – eðlilega kannski.
„Það varð enginn varanlegur skaði á augunum sem er mjög gott. Ég var kannski heppinn með það því þetta var frekar brútal að sjá,“ sagði Gunnar í viðtali nokkrum mánuðum eftir bardagann.


Cristiano Ronaldo

Af hverju? Talaði íslenska landsliðið niður á EM 2016

Staða: Besti fótboltamaður heims

Ronaldo vakti reiði margra Íslendinga eftir að Portúgal mætti Íslandi í fyrsta leik okkar í lokakeppni stórmóts. Íslenska liðið náði jafntefli, 1-1, og lék vel. Ronaldo vandaði íslenska liðinu ekki kveðjurnar eftir leik. „Ísland reyndi ekkert. Það var bara vörn, vörn, vörn og skyndisóknir. Þeir fengu færi og skoruðu eitt mark. Þeir voru heppnir í kvöld,“ sagði Ronaldo sem bætti við að það væri erfitt að spila fótboltaleiki þar sem aðeins annað liðið reynir að vinna.
Þess má geta að sóknarleikur Íslands var í raun lítið síðri en sóknarleikur Portúgals á mótinu; Ísland skoraði 8 mörk í 5 leikjum en Portúgal 9 í 7 leikjum.


Abraham Cooper

Af hverju? Hvatti gyðinga til að sniðganga Reykjavík

Staða: Rabbíni Simon Wisenthal-stofnunarinnar í Bandaríkjunum

Rabbíninn Abraham Cooper virðist hafa horn í síðu Íslendinga af ýmsum ástæðum. Fyrir það fyrsta fór hann þess á leit árið 2012 að Ríkisútvarpið hætti að flytja Passíusálma Hallgríms Péturssonar á páskum. Skrifaði hann Páli Magnússyni útvarpsstjóra bréf þess efnis. Taldi hann að í sálmunum væri hallað mjög á gyðinga, í þeim væri að finna margar neikvæðar tilvísanir.
Tveimur árum síðar, árið 2015, hvatti hann gyðinga til að ferðast ekki til Reykjavíkur. Ástæðan var sú að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur vildi undirbúa og útfæra að Reykjavíkurborg myndi sniðganga ísraelskar vörur.


Steven L. Anderson

Af hverju? Segir Íslendinga bastarða og konurnar hórur

Staða: Prestur í Faithful Word baptistakirkjunni í Arizona

Steven Anderson virðist mjög í nöp við Íslendinga og hefur ítrekað talað illa um land og þjóð. Hann á því nákvæmlega ekkert inni hjá okkur.
Anderson hefur meðal annars kallað Íslendinga þjóð bastarða og gaf hann út heimildamynd máli sínu til stuðnings ekki alls fyrir löngu. Vísaði hann í að mörg börn fæðist utan hjónabands og að hér á landi væri mjög hátt hlutfall ógiftra mæðra. Bætti Steven um betur og sagði meirihluta íslenskra kvenna vera hórur. Takk fyrir það, Steven, en okkur bara líður ágætlega á Íslandi.


Símon Ott

Af hverju? Sagði að Íslendingar myndu fara til helvítis
Staða: Predikari

Svisslendingurinn Símon Ott fór mikinn hér á landi á haustmánuðum 2016 þegar hann kom til Íslands. Fyrst lét hann til sín taka á Klambratúni þar sem nemendur MH og Kvennaskólans voru fyrir. Varð honum tíðrætt um samkynhneigð og kynlíf fyrir hjónaband sem hann sagði að væri synd. Síðar spurðist til hann í Hnífsdal þar sem hann gekk um með skilti og hrópaði að fólki að það ætti á hættu að fara til helvítis ef það sneri sér ekki til frelsarans. Svo fór að Símon var ákærður fyrir hatursorðræðu.


Roosh Vorek

Af hverju? Skrifaði bók sem fjallaði um hvernig væri auðveldast að komast í rúmið með íslenskum konum
Staða: Rithöfundur

Bandaríkjamaðurinn Roosh Vorek dvaldi hér á landi í nokkra mánuði árið 2011 þar sem hann rannsakaði meðal annars hvernig væri auðveldast að komast í rúmið með íslenskum konum. Afraksturinn var bók sem heitir Bang Iceland. Roosh, sem er yfirlýstur andfemínisti, er ekki beint vinsæll á Íslandi og í janúar í fyrra boðaði hann fylgismenn sína hér á landi að Skólavörðuholti þar sem markmiðið var að halda einhvers konar samstöðufund. Þessu var mótmælt harðlega hér á landi, meðal annars á Facebook, og fór svo að fundurinn var blásinn af.


Óvinir fyrri tíma:

Viktor Kortsnoj

Rússneski skákmeistarinn vakti hneykslan margra þegar hann mætti Jóhanni Hjartarsyni í einvígi í undankeppni heimsmeistaramótsins árið 1988. Þar beitti Kortsnoj ýmsum brögðum til þess að koma ungum andstæðingi sínum úr jafnvægi. „Hann truflaði mig með þrennum hætti. Hann ruggaði sér fyrir framan mig, sem var gamalt bragð úr sovéska skákskólanum. Síðan var teflt á lausu sviði og um það þrammaði Kortsnoj á meðan ég hugsaði þannig að sviðið nötraði og skalf. Það sem vakti hins vegar mesta eftirtekt var að Kortsnoj keðjureykti meðan á einvíginu stóð og blés reyknum framan í mig. Íslenska þjóðin varð æf yfir framkomunni en í sannleika sagt truflaði þetta mig minnst,“ sagði Jóhann um atvikið í viðtali við DV í fyrra. Þá var Viktor nýlátinn, 85 ára að aldri.


Richard Nixon

Richard Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var ekki mjög hrifinn af Keflavík þegar hann heimsótti landið árið 1956. Þá var Nixon að vísu varaforseti undir Eisenhower og hingað kominn til að hitta bandaríska hermenn í Keflavík og íslenska ráðamenn. Síðar þegar Nixon kom til Íslands, árið 1973, minntist hann þessarar heimsóknar og þeirrar hlýju móttöku sem hann fékk frá hermönnum í Keflavík, „þeim guðsvolaða stað“ eins og hann orðaði það. Þetta vakti ekki beint mikla kátínu hjá Suðurnesjamönnum sem fannst að sinni heimabyggð vegið.


Halim Al

Af hverju? Fór með dætur sínar og Sophiu Hansen úr landi
Staða: Faðir Dagbjartar og Rúnu

Þjóðin fylkti sér á bak við Sophiu Hansen í forræðisdeilu hennar og Halims Al, fyrrverandi eiginmanns hennar, þeirri allra þekktustu í Íslandssögunni. Sumarið 1990 fór Halim með dætur þeirra, Rúnu og Dagbjörtu, sem þá voru 7 og 9 ára, í nokkurra daga frí til Tyrklands. Hann sneri ekki aftur. Sophia reyndi hvað hún gat að fá dæturnar aftur en hafði ekki erindi sem erfiði. Tuttugu og þrjú ár liðu þar til Rúna, yngri dóttir Sophiu, kom aftur til Íslands í heimsókn. Það gerðist árið 2013.


Staffan Olson

Af hverju? Gerði íslenska handboltalandsliðinu ítrekað lífið leitt

Staða: Fyrrverandi landsliðsmaður Svíþjóðar

Staffan Olson, eða Faxi eins og hann var gjarnan kallaður, var í rauninni Svíagrýlan holdi klædd. Olson gerði íslenska handboltalandsliðinu ítrekað lífið leitt á árum áður enda þótti hann frábær handboltamaður. Íslendingar hreinlega hötuðu Olson. Í landsleik Íslands og Svíþjóðar í Laugardalshöll, líklega í upphafi tíunda áratugarins, bauluðu áhorfendur í hvert sinn sem hann fékk boltann. Staffan gerði það að leik sínum að glotta og líta upp í stúkuna í hvert sinn sem hann skoraði. Íslendingar fyrirgáfu Staffan að lokum, en það var þó ekki fyrr en hann hætti að spila handbolta.


Vladimir Zhirinovsky

Af hverju? Vildi breyta Íslandi í fanganýlendu

Staða: Rússneskur stjórnmálamaður

Rússneski stjórnmálamaðurinn vakti ugg hjá mörgum Íslendingum árið 1992 þegar hann stakk upp á því að Ísland gæti orðið fanganýlenda Rússlands. Á þessum árum var Zhirinovsky í baráttu um að komast til valda í Rússlandi. Ástæðu þess að Zhirinovsky vildi Íslandi þessi örlög má rekja til viðurkenningar Íslands á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja. „Þið hafið kveikt í púðurtunnu. Ísland verður fangelsi fyrir Evrópu,“ sagði hann í samtali við RÚV. Zhirinovsky, sem er 71 árs, er enn í fullu fjöri í rússneskum stjórnmálum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Í gær

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri