fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Dularfullur listi í umferð í Vestmannaeyjum

Deilt um prófkjör eða röðun á lista Sjálfstæðismanna – Listi með nöfnum meintra stuðningsmanna Elliða í umferð

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 20. janúar 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólga er meðal Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum vegna ákvörðunar fulltrúaráðs flokksins um að halda ekki prófkjör, þess í stað mun fulltrúaráðið kjósa um sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn er í yfirburðastöðu í bænum og hefur Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verið bæjarstjóri síðustu tólf ár. Á fundi fulltrúaráðsins milli jóla og nýárs var tillaga um uppstillingu felld og því stefndi allt í prófkjör. Aníta Óðinsdóttir, formaður fulltrúaráðsins, sem segir í samtali við DV að hún styðji prófkjör, segir að athugasemdir hafi borist eftir fundinn og því ákveðið að boða annan fund til að ákveða endanlega hvort farið yrði í prófkjör.

Listi yfir meinta stuðningsmenn Elliða í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins gengur nú manna á milli. Á hann að sýna þá 28 sem Elliði á að hafa smalað á fund fulltrúaráðsins til að koma í veg fyrir prófkjör og sýna fram á tengsl þeirra sem eiga sæti í fulltrúaráðinu. Enginn sem DV ræddi við vildi segja hvaðan listinn kæmi. DV hafði samband við nokkra á listanum til að athuga hvort hann væri marktækur, svör þeirra má sjá til hliðar.
Leynilistinn Listi yfir meinta stuðningsmenn Elliða í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins gengur nú manna á milli. Á hann að sýna þá 28 sem Elliði á að hafa smalað á fund fulltrúaráðsins til að koma í veg fyrir prófkjör og sýna fram á tengsl þeirra sem eiga sæti í fulltrúaráðinu. Enginn sem DV ræddi við vildi segja hvaðan listinn kæmi. DV hafði samband við nokkra á listanum til að athuga hvort hann væri marktækur, svör þeirra má sjá til hliðar.

Ester Garðarsdóttir – Á móti prófkjöriFjóla Margrét Róbertsdóttir – „Ég var á móti prófkjöri.“Jarl Sigurgeirsson –„Mjög óviðeigandi að spyrja um þetta.“ Sveinn Magnússon – „Ég er ekkert heitur með eða á móti, þetta er bara niðurstaðan.“ Páll Marvin Jónsson – „Ég hefði kosið með uppstillingu á fyrri fundinum, en ég kaus með prófkjöri á síðasta fundi.“Hildur Sólveig Sigurðardóttir – Skellti á blaðamannBirna Þórsdóttir – „Tjái mig ekki um þetta.“Unnur Líf – „Ég gef þetta ekki upp.“Hjalti Kristjánsson – „Finnst það mjög óviðeigandi hjá ykkur að eltast við þetta.“Ragnheiður Perla Hjaltadóttir – Á móti Bragi Magnússon – Á móti

Fulltrúaráð „í vasanum“

Elís Jónsson, vélstjóri á Herjólfi, var búinn að boða þátttöku sína í prófkjöri, hann segir í samtali við DV að smalað hafi verið á seinni fundinn til að koma í veg fyrir að Elliði þyrfti að fara í prófkjör. Vill hann meina að á sínum 12 árum í bæjarstjórn væri Elliði búinn að raða samstarfsfólki sínu, fjölskyldu og mökum í fulltrúaráðið. Tillaga um prófkjör var felld með 28 atkvæðum á móti 26, einn seðill var auður og einn ógildur. Elís segir að sú tillaga hafi verið óraunhæf, of margir þyrftu að taka þátt í prófkjörinu og tíminn væri of naumur. Lagði hann því fram breytingartillögu um að 10 manns þyrfti í prófkjör í stað 14, sú tillaga var felld. Niðurstaða fundarins var að farið yrði í röðun sem gengur út á að fulltrúaráðið kýs á listann.

Elís Jónsson gaf kost á sér í prófkjör eftir fund fulltrúaráðsins milli jóla og nýárs, hann er ekki sáttur við niðurstöðuna.
Vélstjóri á Herjólfi Elís Jónsson gaf kost á sér í prófkjör eftir fund fulltrúaráðsins milli jóla og nýárs, hann er ekki sáttur við niðurstöðuna.

Elís segir að margir séu ósáttir við niðurstöðuna því fulltrúaráðið sé „í vasanum“ á bæjarstjóranum, sendi hann lista með nöfnum þeirra sem eiga að hafa kosið gegn prófkjöri á blaðamann DV til að sýna fram á tengsl fulltrúanna við bæjarstjórann og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Viðmælendur DV sem flokkast mega sem andstæðingar Elliða innan Sjálfstæðisflokksins segja að ekki sé um ræða neina sérstaka fylkingu sem stefni á klofningsframboð, þeir sem vilji prófkjör séu einungis þreyttir á að hafa sama oddvitann í 12 ár og tími sé kominn á breytingu. Nafn Írisar Róbertsdóttur grunnskólakennara var ítrekað nefnt í tengslum við baráttuna fyrir prófkjöri og hugsanlegt framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hún vildi ekki ræða við blaðamann DV þegar eftir því var leitað.

Elliði vill konur og ungt fólk á listann

Elliði Vignisson bæjarstjóri sagði í samtali við mbl.is að hann hafi talað fyrir leiðtogaprófkjöri til að tryggja aðkomu kvenna og ungs fólks á lista Sjálfstæðisflokksins. Bendir hann á að í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar þá hafi þrír karlar raðast í þrjú efstu sætin. Aníta Óðinsdóttir, formaður fulltrúaráðsins, gefur lítið fyrir það í samtali við DV: „Það var síðast prófkjör hér í Vestmannaeyjum árið 1990, það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá.“ Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, lagðist gegn prófkjöri, andstæðingar Elliða innan flokksins segja lítið að marka þá afstöðu þar sem sonur Elliða sé varaformaður Eyverja.

Leynilisti í umferð

Listi, sem inniheldur annað orðalag en listi Elísar, er í umferð en enginn viðmælenda DV kannast við að hafa útbúið þann lista. Listann má sjá hér til hliðar. Margir sem eru á listanum kannast við að hafa kosið á móti prófkjöri, sumir vildu ekki ræða við DV en einn bæjarfulltrúi, Páll Marvin Jónsson, sagðist hafa greitt atkvæði með því að fara í prófkjör en er sáttur við þá niðurstöðu að fara í röðum. „Þetta er leið til að sætta ákveðin sjónarmið. Það er fylking hér sem vill prófkjör og önnur fylking sem vill ekki prófkjör. Með röðun mun fulltrúaráðið, þeir sem starfa innan flokksins, fá tækifæri til að kjósa fólk á lista,“ segir Páll Marvin. Einn viðmælandi sagði að lítið væri að marka orð Elísar þar sem hann ynni fyrir Eimskip og vildi komast að í bæjarstjórn til að koma í veg fyrir að bærinn tæki yfir rekstur Herjólfs. Elís hafnar því alfarið og segist ekki hafa neitt að fela, verið væri að nota skoðanir hans um rekstur Herjólfs til að drepa málinu á dreif.

Elliði hefur sagt að hann hefði verið tilbúinn að gefa kost í sér í prófkjöri ef það yrði niðurstaðan en Elís segir að það standist ekki skoðun heldur hafi Elliði beitt sér gegn prófkjöri með öllum tiltækum ráðum. Ekki er þó allt sem sýnist, viðmælendur DV draga margir í efa sýn Elísar á málin, á það líka við um viðmælendur sem tengjast ekki bæjarstjóranum. „Ástæðan fyrir því að Elliði kaus gegn því að fara í prófkjör hefur ekkert að gera með hræðslu við kjósendur, hann veit að staða sín er sterk. Þetta snýst um að gera það sem er þægilegast og koma í veg fyrir að karlar verði í öllum efstu sætunum,“ segir einn viðmælandi DV.

Páll vildi prófkjör

Páll vildi prófkjör

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sat báða fundina og hann segir að niðurstaðan hafi komið á óvart. Sagði hann í samtali við Vísi að hann hefði stutt það eindregið að fara í prófkjör: „Ég tel að þetta sé afar óheppileg niðurstaða fyrir flokkinn í Vestmannaeyjum,“ sagði Páll.

Ekkert sem styður samsæriskenningar um spillingu

Viðmælendur DV innan minnihlutans í Vestmannaeyjum segja að málið snúist um nokkra einstaklinga innan Sjálfstæðisflokksins sem hafi reynt að komast á lista fyrir kosningarnar 2014 en ekki haft erindi sem erfiði og séð fram á að hið sama myndi gerast fyrir kosningarnar í vor. „Ég hef ekki orðið vitni að spillingu í kringum bæjarstjórann, sem fulltrúi minnihlutans er það mitt starf að finna eitthvað á Elliða en það er ekki auðvelt. Það sem fólk er ekki alltaf að átta sig á er að þetta er lítið bæjarfélag og það segir sig sjálft að fólk þekkir hvert annað. Þótt ég sé ekki á sama stað og Elliði í stjórnmálum þá hef ég ekki orðið vitni að neinu sem styður samsæriskenningarnar um spillingu,“ segir Auður Ósk Vilhjálmsdóttir, bæjarfulltrúi E-listans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks