fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Brotist inn hjá Hringbraut

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 5. september 2017 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotist var inn í húsnæði fjölmiðlafyrirtækisins Hringbrautar á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi um helgina og stolið var öllu steini léttara nema útsendingartölvunni. Samkvæmt heimildum DV var þjófurinn eða þjófarnir með lykil, en upp komst um málið þegar starfsfólk mætti til vinnu eftir helgi. DV fékk þær upplýsingar hjá Hringbraut að þetta hafi verið mikið áfall fyrir starfsfólk, teknar hafi verið tölvur, tölvuskjáir, harðir diskar og myndavélar. Hringbraut heldur úti sjónvarpsstöð, vefmiðli og útvarpsstöð á tíðninni 89,1.

Hafliði Helgason framkvæmdastjóri Hringbrautar segir í samtali við DV að málið sé nú í höndum lögreglu: „Okkur tókst að halda úti útsendingu í gær, en það urðu einhverjar seinkanir á dagskránni. En við erum samheldinn hópur og okkur mun takast að vinna okkur út úr þessu saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga