fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

„Ég ætla alls ekki að afskrifa pabba“

Jóhann Hjartarson á kunnuglegum slóðum meðal bestu skákmanna heims – Teflir á Heimsbikarmóti í Georgíu

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 3. september 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kl.11 hefst Heimsbikarmótið í skák í allri sinni dýrð í Tíblisi, höfuðborg Georgíu. Um er að ræða einn allra stærsta skákviðburð ársins þar sem fremstu skákmenn heims freista þess að gera atlögu að heimsmeistaratitli norska snillingsins Magnus Carlsen. Það sem vekur sérstaka athygli er að Magnus sjálfur mun taka þátt í mótinu, sem er einstakt í skáksögunni. Norski heimsmeistarinn leit einfaldlega á það sem mikla áskorun að taka þátt í mótinu og ekki skemmdi mikið verðlaunafé fyrir.

En á Íslandi fellur þátttaka heimsmeistarans í skuggann af enn stærri fréttum. Í fyrsta skipti í sautján ár vann íslenskur skákmeistari sér rétt til þátttöku og því er óhætt að fullyrða að íslenskir skákáhugamenn bíði þess í ofvæni að keppnin hefjist. Það er enginn annar en „áhugamaðurinn“ og stórmeistarinn Jóhann Hjartarson sem mun tefla í Tíblisi. Hann vann sér inn þátttökurétt með því að bera sigur úr býtum á Norðurlandameistaramótinu í skák í sumar. Jóhann tók sér tæplega tveggja áratuga frí frá keppni atvinnumanna í skák en hefur undanfarin ár dustað rykið af taflborðinu og byrjað að tefla á einu og einu móti. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Jóhann, sem er 54 ára gamall, verður elstur keppanda í Tíblisi og líklega sá eini sem lítur á sig sem áhugamann.

Blóðug útsláttarkeppni

Það sem gerir mótið í Tíblisi sérstaklega skemmtilegt er sú staðreynd að um útsláttarkeppni er að ræða en slík mót eru ekki algeng meðal atvinnuskákmanna. Alls munu 128 skákmenn hefja leik og andstæðingur Jóhanns í fyrstu umferð er tékkneski ofurstórmeistarinn David Navara. Þeir munu tefla tvær skákir, hvora með sínum litnum, og mun sigurvegarinn fara áfram í aðra umferð. Ef jafnt verður eftir skákirnar tvær verða tefldar hraðskákir til þess að skera úr um sigur. Sá sem tapar fer heim í næsta flugi en sigurvegarinn fer áfram í 64-manna úrslit og síðan heldur baráttan áfram þar til tveir skákmenn tefla til úrslita. Mótið verður í hávegum haft á helstu skákfjölmiðlum heimsins og má búast við því að hver einasti leikur Jóhanns verði sendur út í beinni útsendingu á fjölmörgum netsíðum. Sannkölluð veisla fyrir íslenska skákáhugamenn.

Fékk að upplifa nokkur góð ár

Einn einstaklingur verður þó eflaust spenntari en aðrir, sonur Jóhanns, píanóleikarinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson, sem hefur getið sér gott orð sem liðsmaður hljómsveitarinnar Hjaltín. Í ljósi afreka föðurins kemur ekki á óvart að Hjörtur sé mikill skákáhugamaður. Hann er fæddur árið 1987 og var því aðeins eins árs gamall þegar Jóhann var að vinna sitt stærsta afrek, að knésetja Viktor „hinn grimma“ Korchnoi í áskorendaeinvígi árið 1988. „Ég náði nokkrum góðum árum í að fylgjast með föður mínum í fremstu röð. Hann hætti að tefla um áramótin 1997–1998 en þá var hann í kringum 40. sæti heimslistans. Ég var þá byrjaður að tefla og kominn með mikinn áhuga á skák. Á þessum tíma var ég mjög meðvitaður um árangur hans og mjög stoltur. Ég gerði mér samt ekki grein fyrir því hversu gríðarlega sterkur hann var á þessum tímapunkti, þegar hann leggur Korchnoi að velli, fyrr en ég fann gamla úrklippubók hjá ömmu. Þar voru allar fréttir af einvíginu klipptar út og settar snyrtilega í bókina. Þá sá ég að þjóðfélagið hafði gjörsamlega farið á hliðina á þessum tíma, nánast eins og þegar landslið í boltaíþróttum gerir góða hluti nú á dögum,“ segir Hjörtur.

Hann vill þó meina að afrek föður síns hafi gert það að verkum að hann hafi fljótlega ákveðið að finna sér annan vettvang fyrir hæfileika sína en skáklistina. „Ég get alveg upplýst að það gat verið þreytandi þegar maður var að tefla sjálfur að allir vissu hver pabbi manns var. Margir voru fljótir að benda á þá staðreynd, sem stendur að ég held óhögguð, að barn stórmeistara hefur aldrei orðið stórmeistari. Á hinn bóginn gaf þetta mér líka forskot því ég gat borið skákirnar mínar undir föður minn og hafði auðvitað aðgang að einu stærsta skákbókasafni landsins. Hvort ég hafi nýtt það forskot vel er önnur saga,“ segir Hjörtur kíminn.

„Ég held að það hafi alltaf blundað í pabba að byrja aftur að tefla af einhverri alvöru. Út af önnum þá hefur það þó aðeins verið raunhæfur möguleiki á síðustu árum. Hann kitlaði í fingurna að stíga aftur inn á skáksviðið

Kitlaði í fingurna

Eins og áður segir þá hætti Jóhann atvinnumennsku í skák fyrir um tveimur áratugum en að sögn Hjartar hefur hann fylgst nokkuð vel með af hliðarlínunni og teflt sér til gamans. „Já, hann hefur alltaf fylgst vel með. Þá er hann meðlimur í skákklúbbi sem hittist mánaðarlega auk þess sem hann teflir nokkrar skákir á ári í Íslandsmóti skákfélagsins. Þá hefur hann haldið góðu sambandi við gamla kollega, íslenska og erlenda,“ segir Hjörtur.

Þegar atvinnumannsferlinum lauk einbeitti Jóhann sér að lögfræði og hefur um árabil verið lögfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hann sinnir því starfi að sjálfsögðu enn og hefur mætt miklum skilningi hjá vinnuveitandanum varðandi aukna taflmennsku. „Ég held að það hafi alltaf blundað í pabba að byrja aftur að tefla af einhverri alvöru. Út af önnum þá hefur það þó aðeins verið raunhæfur möguleiki á síðustu árum. Hann kitlaði í fingurna að stíga aftur inn á skáksviðið,“ segir Hjörtur.

Erfið endurkoma

Segja má að endurkoma Jóhanns hafi hafist með þátttöku í Íslandsmótinu 2015 þar sem tólf sterkustu skákmenn þjóðarinnar öttu kappi. Árangur Jóhanns olli vonbrigðum en hann endaði í 10. sæti mótsins. Það er hins vegar ekki í hans eðli að gefast upp. Ári síðar mætti hann aftur til leiks á sama móti og landaði Íslandsmeistaratitlinum. „Ég held að árangurinn á Íslandsmótinu 2015 hafi að mörgu leyti verið eðlilegur í ljósi þess að pabbi var ryðgaður. Hann tók vonbrigðum með stóískri ró, eins og hann gerir reyndar alltaf þegar hann þarf að takast á við ósigur. Í staðinn fyrir að kvarta og kveina er besta leiðin að svara fyrir sig við borðið og það er það sem hann gerði. Það hefur alltaf einkennt hann, að ef hann fær slæma stöðu eða tapar illa þá lætur hann það ekki á sig fá heldur bítur í skjaldarrendur og lætur verkin tala. Hann sýnir aldrei neina reiðitilburði þegar hann tapar, hvort sem er við skákborðið eða utan þess,“ segir Hjörtur.

„Þetta hefur verið algjör veisla fyrir okkur“

Að hans sögn er nánasta fjölskylda Jóhanns himinlifandi með endurkomu hans við skákborðið. „Þetta hefur verið algjör veisla fyrir okkur, ekki síst fyrir mig sem er eini meðlimur fjölskyldunnar, að föður mínum undanskildum, sem teflir að einhverju ráði. Þetta hefur reyndar, ásamt öðru, stuðlað að því að ég er kominn með bullandi skákbakteríu aftur. Það spillti síðan ekki fyrir að ég og Ingrid, unnusta mín, eignuðumst dótturina Kristínu Jónu í sömu viku og pabbi varð Íslandsmeistari í fyrra. Júní 2016 var því mjög eftirminnilegur mánuður fyrir okkur svo ekki sé meira sagt,“ segir Hjörtur og kveðst mjög spenntur fyrir mótinu í Tíblisi.

Hann er þó raunsær varðandi möguleika föður síns. „Líkurnar á sigri Navara eru auðvitað meiri. Hann er gríðarlega sterkur skákmaður, atvinnumaður fram í fingurgóma og á besta aldri. Nýlega vann hann sigur á sjálfum Gary Kasparov í atskák, þó að það hafi nú verið ótrúlegt klúður hjá goðsögninni. Hann er einfaldlega einn allra sterkasti skákmaður heims. Hins vegar ætla ég alls ekki að afskrifa pabba, hann hefur engu að tapa, hefur reynsluna og á góðum degi getur hann orðið hvaða andstæðingi sem er óþægur ljár í þúfu,“ segir Hjörtur.

Hann segir að undirbúningur föður síns hafi verið tiltölulega rólegur. „Hann tók sér gott sumarfrí, auk þess sem hann hefur verið við vinnu síðustu daga. Ég veit þó að hann er að grúska bak við tjöldin og mun setja meiri kraft í undirbúninginn síðustu dagana fyrir einvígið,“ segir Hjörtur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt