fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Nær 200 sendingar af melatonin svefnlyfi stöðvaðar

Auður Ösp
Þriðjudaginn 19. september 2017 10:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tollverðir hafa stöðvað 199 sendingar, sem innihéldu svefnlyfið melatonin, í tollpósti það sem af er þessu ári. Þar af bárust 88 sendingar á tímabilinu júní – ágúst sl. Langflestar sendinganna sem innihalda melantonin hafa borist frá netverslunum í Bandaríkjunum. Þá hefur Matvælastofnun varað við kaupum á fæðubótarefnum á internetinu.

Í tilkynningu er vakin athygli á því að melantonin er skilgreint sem lyf hér á landi og því fellur það, svo og fæðubótarefni sem innihalda það, undir lyfjalög. Samkvæmt því er innflutningur bannaður.

Á meðfylgjandi myndum má sjá brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum og eru á leið til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Tollstjóri minnir jafnframt á alþjóðlega aðgerð sem gerð var um mitt ár 2016 á vegum INTERPOL með þátttöku íslensku tollgæslunnar. Lyfjastofnunar og aðkomu Europol, Matvælastofnunar o.fl. Í aðgerðinni var lagt hald á 12. 2 milljónir eininga af ólöglegum og mögulega lífshættulegum lyfjum og 4.932 vefsíðum sem buðu upp á slíkan varning lokað.

Markmið aðgerðarinnar var að vernda heilsu og öryggi almennings gegn ólöglegri framleiðslu og jafnframt að stöðva slíka framleiðslu.

Í tilkynningu segir jafnframt að alþjóðlegar aðgerðir af þessu tagi hafi staðfest að glæpamenn svífast einskis þegar kemur að vörusvikum við framleiðslu og engin tegund varnings er undanskilin, þar með talin lyf og fæðubótarefni að því er fram hefur komið hjá INTERPOL og Europol.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás