Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sló sér á brjóst á hádegisfundi eldri Sjálfstæðismanna í Valhöll í dag. Sagði Bjarni að það væri stórkostlegt afrek að geta hækkað greiðslur til ellilífeyrisþega í 300 þúsund krónur á mánuði. Frá þessu greinir Morgunblaðið. Bjarni sagði:
„Ég er stoltur af breytingunni sem felst í því að þetta sama fólk hafði einungis 225 þúsund fyrir tveimur árum. Þetta eru einhverjar mestu framfarir sem hafa orðið á þessu sviði en við erum ekki búin. Við ætlum að halda áfram á þessari braut.“
Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi á Akranesi gefur lítið fyrir þetta og tjáir sig um fundinn á Facebook-síðu sinni og spyr hvað Bjarni myndi segja um það „afrek“ að hækka laun þingmanna um 448 þúsund eða 68% á mánuði. Vilhjálmur segir:
„Forsætisráðherra segir það vera „stórkostlegt afrek“ að um næstu áramót muni greiðslur til ellilífeyrisþega frá Tryggingastofnun ná 300 þúsund krónum á mánuði. En hann bendir á að árið 2015 hafi þessi sama greiðsla verið 225 þúsund krónur eða sem nemur 25% hækkun á föstu verðlagi. Þetta er sem sagt hækkun upp á 75 þúsund á mánuði á þremur árum.“
Vilhjálmur heldur áfram:
„En hvað skyldi þá forsætisráðherra segja yfir „afreki“ kjararáðs sem hefur hækkað þingfarakaupið frá sama tíma úr 651 þúsund á mánuði í 1,1 milljón eða sem nemur 448 þúsundum á mánuði eða sem nemur 68%.“
Vilhjálmur telur að í þessu samhengi sé hækkun til ellilífeyrisþega ekkert til að hreykja sér af líkt og Bjarni gerði í dag. Staðreyndirnar tali sínu máli.
„Ég held í ljósi þessara staðreynda að hann geti varla kallað hækkun á ellilífeyrir upp á 300 þúsund á mánuði ekkert „stórkostlegt afrek“ Hann getur hins vegar klárlega sagt að launahækkun kjararáðs sé „stórkostlegt afrek““