Í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem birtur var á vef dómsmálaráðuneytisins fyrr í dag hefur dómsmálaráðuneytið veitt aðgang að gögnum um hverjir það voru sem mæltu með að Robert Downey áður Róbert Árni Hreiðarsson, fengi uppreist æru. Robert var dæmdur fyrir barnaníð árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum. Hefur það verið harðlega gagnrýnt að Robert fengi uppreist æru. Um er að ræða vini Roberts sem skrifuðu meðmælabréf til ráðuneytisins.
Á vef dómsmálaráðuneytisins segir að að Viðar Marel Jóhannsson, Halldór Einarsson og Gautur Elvar Gunnarsson hafi skrifað meðmælabréf.
Í bréfi Halldórs Einarssonar segir:
Mér er það mikil ánægja að veita umsögn til ráðuneytisins um Robert Downey lögfræðing vegna beiðni hans um uppreist æru.
„Ég hef þekkt Robert frá barnæsku og get ég fullyrt með góðri samvisku að hann hefur hegðað sér óaðfinnanlega í lífi og starfi frá því að hann kom úr fangelsi. Á milli okkar er mikil og góð ævarandi vinátta, traust og trúnaður.
Viðar Marel Jóhannsson segir í sínu bréfi:
Dugnaður, ósérhlífni, hjálpsemi eru þau orð sem koma upp í hugann þegar lýsa á Robert Árna Hreiðarssyni. Ég hef þekkt Róbert í rúm 45 ár og hefur aldrei borið skugga á vinskap okkar. Róbert er gott að eiga að vini.“
Gautur Elvar Gunnarsson lögfræðingur segir:
„Ég hef þekkt Róbert um langa hríð og þekki ég hann af góðu einu, bæði persónulega og í starfi.
Ég mæli eindregið með því að Róbert fái uppreisn æru og tel ég hann verðugan þess. Þá veit ég til þess að hann hefur hagað sér óaðfinnanlega síðan hann fékk reynslulausn.“