fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Íslenska sjávarútvegssýningin: Stærri og áhugaverðari en nokkru sinni fyrr

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 10. september 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Undanfarið hefur íslenskur sjávarútvegur fjárfest í samtals 16 nýjum fiskiskipum að heildarverðmæti um 280 milljónir evra eða yfir 35 milljarðar íslenskra króna. Þessi fjárfesting hefur valdið stórauknum áhuga á Íslensku sjávarútvegssýningunni í ár og hefur alþjóðlegum þátttakendum í henni fjölgað um 41% frá því sýningin var haldin síðast,“ segir Marianne Rasmussen Coulling, framkvæmdastjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar. Marianne hefur stýrt sýningunni frá árinu 1996, alls sjö sýningum, en þær eru haldnar á þriggja ára fresti. Síðast var sýningin haldin árið 2014.

Ljóst er að sýningin verður mun stærri í ár en árið 2014, hvað fjölda þátttakenda varðar, og spennandi verður að sjá hver fjölgun gesta verður. Árið 2014 sóttu yfir 15.000 gestir sýninguna og var það 12% fjölgun frá sýningunni árið 2011. Marianne segir að tíðni sýninganna sé reglulega til umræðu en það fyrirkomulag að halda hana á þriggja ára fresti sé í samræmi við óskir sýnenda og gesta. Þriggja ára frestur tryggi að ávallt séu fjölmargar áhugaverðar nýjungar á hverri sýningu og vörur sem gestir hafa áhuga á að fjárfesta í. Sýningin í ár verði þar engin undantekning.

„Í ár koma fram nærri 500 ný fyrirtæki, vörur og vörumerki á sýningunni og aðilar frá samtals 22 nýjum löndum taka þátt. Á meðal þátttakenda eru mun stærri aðilar frá Danmörku og Noregi en hafa verið áður á sýningunni og nýir þátttakendur frá fjarlægum stöðum á borð við Bangladess, Indlandi, Perú, Bandaríkjunum, Tyrklandi, Spáni, Portúgal og Litháen. Þetta getum við þakkað íslensku þátttakendunum og gestum sýningarinnar sem hafa gert hana að þeim viðburði sem hún er í dag,“ segir Marianne og bætir við að mikil tilhlökkun ríki hjá henni og hennar fólki vegna sýningarinnar sem verður opnuð miðvikudaginn 13. september.

Íslenska sjávarútvegssýningin er haldin í íþróttamiðstöðinni Smáranum, Dalsmára 5 í Kópavogi. Opið verður miðvikudag frá kl. 10 til 18, fimmtudag frá 10 til 18 og föstudag frá 10 til 17.

Auk sýningarinnar sjálfrar verða Íslensku sjávarútvegsverðlaunin veitt í sjöunda sinn ásamt því að haldin verður önnur Icefish-ráðstefnan. Þar verður þemað „Fiskúrgangur skilar hagnaði“ en Íslendingar eru í fremstu röð á því sviði.

Heimasíða sýningarinnar er á slóðinni www.icefish.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“