Ónefndur íslenskur lottóspilari er búinn að eiga afar farsælt ár í íslensku hlutaveltunni. Á vormánuðum vann viðkomandi þriggja milljóna króna vinning á Jóker og hefðu flestir búist við því að þá væri heppnin uppurin að sinni. Því var öðru nær. Samkvæmt heimildum DV var sami einstaklingur í hópi fjögurra vinningshafa í lottóútdrættinum þann 19. ágúst síðastliðinn en allir hlutu þeir 20 milljónir króna í sinn hlut. Þrír af fjórum vinningshöfum hafa gefið sig fram en Getspá auglýsir en eftir síðasta vinningshafanum.