Laugardaginn 29. júlí barst lögreglunni í Oldbury á Englandi tilkynning frá íbúa í parhúsi að hann hefði heyrt hræðileg öskur berast frá þremur börnum í hinum helmingi hússins. Þegar lögreglumenn komu á vettvang blasti hryllileg sjón við þeim.
Oldbury er nærri stórborginni Birmingham. Þegar lögreglumenn komu í húsið um klukkan 14 voru þrjú lítil börn í húsinu en auk þeirra voru tveir lífvana fullorðnir þar. Þeir fullorðnu voru úrskurðaðir látnir á vettvangi.
Þetta voru 26 ára kona, sem var með mikla höfuðáverka, og þrítugur karlmaður. Lík karlmannsins var ekki í sama rými og lík konunnar. Lögreglan telur að maðurinn hafi myrt eiginkonu sína í miklu æðiskasti og hafi síðan tekið eigið líf fyrir framan börnin þeirra, eitt kornabarn og tvö börn yngri en átta ára.
Mirror segir að börnin hafi verið flutt á sjúkrahús en hafi síðan verið komið í umsjá ættingja.
Talsmaður lögreglunnar segir að ekki sé talið að þriðji fullorðni einstaklingurinn hafi komið að málinu. Þetta sé hörmulegur atburður sem hafi líklegast átt sér stað um morguninn.