fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Íslenska kýrin ekki norræn

Er skyldust frönskum og breskum kúm – Gengur í berhögg við viðtekna söguskoðun

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 27. ágúst 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kúakynið er skyldara frönskum og breskum kúakynjum en þeim norrænu. Þetta sýna DNA-greiningar sem gerðar hafa verið á kynbótanautum sem notuð hafa verið hér á landi. Þetta gengur gegn viðtekinni söguskoðun sem hefur verið sú að íslenskt kúakyn sé að stofni til norrænt, hafi komið hingað til lands með landnámsmönnum og hafi haldið sömu eiginleikum í 1.100 ár.

Hægt að meta kálfa við fæðingu

Landssamband kúabænda hefur sett af stað verkefni sem miðar að því að umbylta kynbótarækt nautgripa hér á landi. Með DNA-rannsóknum verður hægt að ákvarða strax eftir að kálfar koma í heiminn hvort þeir séu heppilegir til áframhaldandi ræktunar. Safna á DNA-sýnum úr 7.500 íslenskum kúm og taka erfðamengi þeirra til skoðunar. Það verður síðan samkeyrt við skýrslur sem haldið hefur verið saman um ýmsa kynbótaþætti kúnna, afurðir, mjólkurlag, byggingu, skapgerð auk annars. Sömuleiðis á að DNA-greina um 500 naut sem hafa verið notuð til sæðingar hér á landi á árabilinu 1990 til 2012. Að þessu loknu er talið að næg gögn verði til staðar til að nýta DNA-prófanir á nýfæddum gripum til ákvörðunar í ræktunarstarfi.

„Þetta gerir okkur kleift að meta hversu góðir kynbótagripir kálfarnir eru um leið og þeir fæðast. Það er tekið DNA-sýni úr nýbornum kálfi og borið saman við gagnsafnið. Með því er kynbótagildi gripanna greint strax og þannig er hægt að stytta svokallað ættliðabil mjög mikið. Með núverandi aðferðum þarf að prófa gripina og það tekur allt upp í sex ár. Hvert naut á Nautastöðinni þarf að eignast allt upp í 100 dætur og svo þarf að meta kosti þeirra í mjöltum, í byggingu, skapgerð og svo framvegis. Þetta kostar mikið, það þarf að ala upp gripi, naut og kýr, sem svo reynast hugsanlega illa. Með DNA-greiningum styttirðu þennan tíma og eykur erfðaframfarir stofnsins sem því nemur, styttir tímann og minnkar kostnaðinn,“ segir Baldur Helgi Benjamínsson, verkefnisstjóri Erfðamengisúrvals.

Ránsferðir víkinga líklegasta skýringin

Þegar hafa 47 naut sem notuð hafa verið til sæðingar hér á landi verið DNA-greind og eins og segir hér í upphafi kom niðurstaðan á óvart. „Í ljós kom að skyldleiki íslenska kúastofnsins er einkum við franskar kýr frá Bretagne-skaga og breska kúastofna. Eðli málsins samkvæmt eru allir kúastofnar fjarskyldir en þessir stofnar standa næst þeim íslenska. Það segir okkur að þegar víkingarnir fóru ránshendi um Bretlandseyjar og Evrópu þá tóku þeir ekki bara með sér ambáttir heim til heldur einnig búpening, sem síðar endaði hér á landi,“ segir Baldur Helgi.

Ekki í samræmi við fyrri rannsóknir

Þessar niðurstöður ganga gegn hefðbundinni söguskoðun en einnig gegn niðurstöðum fyrri rannsókna. Árið 1962 voru gerðar umfangsmiklar rannsóknir á blóðflokkagerð íslenskra nautgripa og niðurstöður þeirra bornar saman við nautgripakyn í Noregi. Þar kom í ljós að blóðflokkagerð íslenskra kúa var mjög svipuð og í gömlum kúakynjum í Noregi. Á tíunda áratug síðustu aldar voru einnig gerðar samanburðarrannsóknir á norrænum kúakynjum undir forystu Stefáns Aðalsteinssonar, sem þá var framkvæmdastjóri Norræna genabankans fyrir búfé. Þar kom fram að sjö kúakyn á Norðurlöndum væru lík hverju öðru og hefðu haldið sömu sérkennum þótt þau hefðu verið aðgreind í 1.100 ár. Þar á meðal var íslenska kúakynið og renndu niðurstöðurnar stoðum undir þá kenningu að íslenska kúakynið væri komið í beinan legg frá landnámskúakyninu.

Niðurstöðurnar nú kollvarpa þessari kenningu hins vegar. Baldur Helgi segir að niðurstöðurnar hafi komið á óvart en þó ekki algjörlega. „Þetta er vissulega ekki eins og hefur verið talið til þessa. Þetta kemur þó ekki fullkomlega á óvart, við vitum að víkingarnir fóru þarna um ránshendi og þetta hefur fylgt með,“ segir Baldur Helgi og bendir jafnframt á að frá landnámi séu erfðalínur nautgripa orðnar gríðarlega langar, í kringum 200 kynslóðir. Á þeim tíma hafi gengið yfir landið ýmis áföll líkt og móðuharðindin sem höfðu bæði í för með sér mannfelli og gripa. Því séu líkur á að margt athyglisvert geti komið í ljós þegar búið verður að DNA-prófa allan þann fjölda sem stefnt er að og greina þau gögn.

„Við vitum að víkingarnir fóru þarna um ránshendi og þetta hefur fylgt með“

Mögulega samið við Íslenska erfðagreiningu

Þá kom einnig í ljós við DNA-greiningar á nautunum 47 að þrátt fyrir að kúastofninn hér á landi sé einsleitari en nokkur annar kúastofn í landinu og eigi að algjörum meginhluta einn fornan uppruna, þá eru þess dæmi að erfðaefni úr erlendum kynjum hafi fundist í þeim. Nánar tiltekið í tveimur nautum úr Borgarfirði sem höfðu erfðaefni danskra svartskjöldótta kúakynsins og ameríska Jersey-kúkynsins. Innflutningur á kúm eða erfðaefni þeirra hefur í áratugi lotið ströngum takmörkunum. „Hins vegar hafa á síðari tímum verið fluttir inn gripir, um það eru heimildir að á nítjándu öldinni hafi alltíður innflutningur gripa átt sér stað. Áhrifin af þessum innflutningi eru hins vegar mjög lítil og með tímanum munu þau þurrkast alveg út, ef það er ekki orðið nú þegar. Þessi tvö naut sem um ræðir, sem voru innblönduð að einhverju leyti, reyndust vera mjög léleg. Dætur þeirra týndu mjög fljótt tölunni og spor þeirra í dag eru nánast engin, en þetta eru gripir sem voru uppi fyrir þrjátíu árum eða svo. Þetta sýnir okkur hins vegar að svona kynblöndun er mun nær okkur í tíma en við héldum,“ segir Baldur Helgi. „Meginniðurstaðan er sú að stofninn er mjög einsleitur að uppruna. Það eru 29 naut af þessum 47 sem eiga bara einn uppruna. Ef þú tækir bara einhvern annan kúastofn í veröldinni er ólíklegt að þú fengir þetta hátt hlutfall.“

Til umræðu er að semja við Íslenska erfðagreiningu um úrvinnslu gagnanna og hafa forsvarsmenn fyrirtækisins tekið vel í það. Þar sé þekking og aðstaða nú þegar til staðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi