Fylgi Flokks fólksins eykst enn – Sjálfstæðisflokkurinn hrapar
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað um tæp 5 prósentustiga fylgi frá síðustu mælingu MMR sem lauk þann 21. júlí síðastliðinn en flokkurinn mælist þó enn með mest fylgi allra íslenskra flokka, eða 24,5%.
Flokkur Vinstri grænna fylgdi þar á eftir með 20,5% fylgi og Píratar mældust með 13,5% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um 7 prósentustig milli kannanna, kváðust 27,2% styðja ríkisstjórnina samanborið við 34,1% í síðustu könnun MMR.
Fylgi Samfylkingarinnar stendur í stað milli kannanna og mælist nú 10,6%. Framsóknarflokkurinn bætir eilítið við sig fylgi, mælist fylgið nú 10,1% og mældist 9,6% í síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins mælist nú 6,7% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mælist nú 6,0% og mældist 4,7% í síðustu könnun, sem þýðir að flokkurinn myndi ná manni inn á þing. Björt framtíð myndi ekki ná manni inn á þing líkt og í könnunum að undanförnu, en fylgi við flokkinn eykst lítillega, mælist Björt framtíð nú með 3,6% en mældist 2,4% í síðustu könnun. Íslenska þjóðfylkingin fengi 1,6% fylgi og Dögun 1,4% fylgi, aðrir flokkar fengju 1,6% samanlagt.
Könnunin var gerð dagana 15. til 18. ágúst 2017, spurðir voru 955 einstaklingar, 18 ára og eldri.