fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Björgun flytur og Bryggjuhverfið stækkar

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 18. ágúst 2017 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Lárus Dagur Pálsson framkvæmdastjóri Björgunar skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu þess efnis að Björgun flytji athafnasvæði sitt í Gunnunes sem er á sunnanverðu Álfsnesi. Vilyrði fyrir lóð er í samræmi við samþykkt borgarráðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar segir að vinna við breytingar á skipulagi sé þegar hafin og hefur ráðgjafafyrirtækinu Alta verið falin umsjón með verkinu.

„Umhverfismat er forsenda breytinga á skipulagi og m.a. verður gerð könnun á gróðurfari og dýralífi á svæðinu. Þá verða landkostir metnir út frá útivist, sjónrænni röskun, mati á menningarminjum og mögulegri mengun eða truflun í nágrenni svæðisins. Fjölmenn íbúðahverfi eru nokkuð langt undan og því sjónræn áhrif mest á nesinu sjálfu. Lítið er um að svæðið sé nýtt til útivistar. Gert er ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum í Gunnunesi eins og gatnagerð og annarri uppbyggingu innviða í framhaldi af breyttu skipulagi,“ segir í tilkynningunni.

Björgun, sem er framleiðandi steinefna til mannvirkjagerðar á Reykjavíkursvæðinu, mun flytja í síðasta lagi fyrir lok maí árið 2019. „Stærsta verkefni Björgunar á Sævarhöfðanum sem hefst innan skamms er gerð fyrsta áfanga landfyllingar við Elliðavoginn sem felur jafnframt í sér endanleg skil lóðarinnar og mikilvægan undirbúning fyrir uppbyggingu svæðisins. Einnig er fyrirhugað hreinsunarstarf sem felst í að fjarlægja fínefni sem runnið hafa í sjó næst núverandi lóðamörkum í Elliðavognum,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að lokum að á athafnasvæði Björgunar við Elliðaárvoginn komi næsti áfangi Bryggjuhverfis og hyllir undir lok deiliskipulagsvinnu. „Eftir lögbundið kynningarferli verður mögulegt að bjóða lóðir til sölu og uppbyggingar. Stækkun bryggjuhverfisins tengist niðurstöðu hugmyndasamkeppni um að breyta Ártúnshöfða í blandaða byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis, auk þess að stækka hverfið með landfyllingum til norðurs út í Elliðaárvoginn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu