fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Tryggja framtíð Hugarafls með langtímasamningi

Stefnt að gerð langtímasamnings um aukin framlög

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 17. ágúst 2017 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefnt er að gerð langtímasamnings um aukin framlög til Hugarafls til að styrkja starf samtakanna í þágu fólks með geðraskanir. Þetta var niðurstaða fundar sem félags- og jafnréttismálaráðherra og forsvarsmenn Hugarafls áttu í morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem velferðarráðuneytið hefur sent frá sér.

Fundinn sátu af hálfu Hugarafls stjórnarmennirnir Auður Axelsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir og Árni Steingrímsson auk Halldórs Más Sæmundssonar aðstandanda. Af hálfu ráðuneytisins sátu, auk félags- og jafnréttismálaráðherra, aðstoðarmenn hans og aðstoðarmenn heilbrigðisráðherra.

Í tilkynningunni kemur fram að á fundinum hafi verið farið yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðuneytinu að undanförnu, sameiginlega af hálfu heilbrigðis- og félagshluta þess, til að greina stöðu Hugarafls og finna leiðir til að styðja við félagið þannig að það nýtist sem best fólki með geðræn vandamál.

Þá kemur fram að ráðherra hafi lýst vilja sínum til að efla starf Hugarafls, einkum virkni og endurhæfingarúrræði samtakanna sem hafa reynst vel fjölda fólks sem glímt hefur við geðraskanir af ýmsum toga:

„Hugarafl hefur unnið mikilvægt brautryðjandastarf og um árangurinn af starfi samtakanna verður ekki deilt. Það er mikilvægt að starfsemin nái að þróast áfram og eflast og það erum við sammála um að takist best með vönduðum langtímasamningi um starfsemina þar sem fjallað er um markmið og árangursmælingar,“ sagði Þorsteinn Víglundsson meðal annars á fundinum.

Auður Axelsdóttir sagðist á fundinum ánægð með þá stefnu sem málefni Hugarafls hafi tekið. Gerð langtímasamning sé æskileg niðurstaða og hún treysti því einnig að farsæl lausn náist fljótt sem tryggi starfsemi samtakanna á næstu mánuðum:

„Við finnum að það er fullur skilningur á því hvað starfsemi Hugarafls er mikilvæg í íslensku samfélagi og erum afar ánægð með þá viðurkenningu“ sagði Auður meðal annars. Undir þetta tóku aðrir fulltrúa Hugarafls á fundinum og sögðust hafa miklar væntingar til þeirrar vinnu sem framundan er við gerð langtímasamnings og binda vonir við að niðurstaða náist fljótt til að eyða óvissu.

Hugarafl hefur frá árinu 2011 notið styrkja frá velferðarráðuneytinu sem nema samtals 18,6 milljónum króna, að mestu frá heilbrigðishluta ráðuneytisins. Samtökin fengu einnig 5 milljóna króna styrk frá fjárlaganefnd Alþingis árið 2016. Auk þessa er í gildi samningur milli Hugarafls og Vinnumálastofnunar sem kveður á um þjónustukaup stofnunarinnar af Hugarafli fyrir 10 milljónir króna árlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt