Bifreið var ekið á gangandi vegfarendur á Römblunni
Lögreglan í Barcelona á Spáni hefur staðfest að einn hafi látist þegar sendibifreið var ekið inn í mannfjölda á Römblunni í miðborginni í dag. Þá hefur lögreglan staðfest að 32 eru slasaðir, þar af tíu alvarlega. Þetta kemur fram í frétt AP. Spænskir fjölmiðlar segja að allt að þrettán hafi látist.
Lögregla telur að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða, en ökumaðurinn flúði á hlaupum eftir að hafa ekið á fólkið. Mikill fjöldi fólks var á Römblunni, eins og venja er á þessum árstíma, þegar bifreiðinni var ekið á fólkið.
Enginn hefur lýst ábyrgð á ódæðisverkinu en á undanförnum misserum hafa íslamskir hryðjuverkamenn beitt þessari aðferð, að aka á gangandi vegfarendur. Slíkar árásir hafa verið framdar í Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi svo dæmi séu tekin.
Lourdes Porcar, vegfarandi á Römblunni, varð vitni að atvikinu. Hann lýsir því í samtali við TV3-sjónvarpsstöðina að bifreiðinni hafi verið ekið mjög hratt á fólkið. Ljóst hafi verið að um viljaverk væri að ræða.
Ekki er búið að handtaka hinn grunaða samkvæmt nýjustu fréttum.