Hinsegin dagar ná hápunkti sínum með Gleðigöngunni en hún hefst klukkan 14 í dag. Í ár verða breytingar gerðar á gönguleið gleðigöngunnar. Uppstilling göngunnar verður frá kl. 11 á Hverfisgötu, milli Ingólfsstrætis og Klapparstígs. Gangan leggur stundvíslega af stað frá gatnamótum Hverfisgötu og Ingólfstrætis kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður niður Hverfisgötuna, eftir Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu þar sem glæsilegir útitónleikar taka við í Hljómskálagarðinum.
Í Gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni.
Allt útlit er fyrir að vel muni viðra á göngufólk því spáð er sólskini, 12 stiga hita og hægri norðvestanátt í eftirmiðdaginn.