fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Alvarlegur byggðavandi í vændum

Sauðfjárbændur bregðast við fréttaflutningi RÚV

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 12. ágúst 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landssamtök sauðfjárbænda hafa sent frá sér fréttatilkynningu vegna umfjöllunar um afkomu sauðfjárbænda í fréttum RÚV í gærkvöld. Þar sagði Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra að búvörusamningarnir væru vandamálið og ekki kæmi til greina að auka framlög til sauðfjárbænda án þess að búvörusamningurinn, sem er nokkurra mánaða gamall, yrði endurskoðaður.

Landssamtök sauðfjárbænda segja hins vegar í tilkynningu sinni að enn sé áhrifa búvörusamningsins ekki farið að gæta í framleiðslu á kindakjöti. Tilkynningin er svohljóðandi í heild:

„Íslenskir sauðfjárbændur horfa fram á þriðjungs lækkun á afurðaverði í haust, í kjölfar nærri 10% lækkunar á síðasta ári. Þessar lækkanir munu koma harkalega niður á sveitum landsins og bitna sérstaklega á yngri bændum. Bændur hafa þegar lagt út í nánast allan kostnað við lambakjötsframleiðslu haustsins og lækkun á afurðaverði er því hrein og klár launalækkun. Þessi launalækkun er 1.800 milljónir króna fyrir stéttina í heild ef hún gengur eftir sem horfir og bætist þá við 600 milljónir sem bændur tóku á sig í fyrra.

Hringinn í kringum landið er sauðfjárrækt hryggjastykkið í atvinnulífi dreifbýlis. Að auki byggir fjöldi íbúa í þéttbýli afkomu sína á úrvinnslu sauðfjárafurða og þjónustu við bændur. Því er mikilvægt að bændur og stjórnvöld taki höndum saman um lausn vandans hið fyrsta. Þar þarf bæði að horfa til skammtímaaðgerða sem taka á þeim bráðavanda sem nú blasir við en einnig til langs tíma svo koma megi í veg fyrir að svipuð staða komi upp aftur.

Þriðjungur af kindakjötsframleiðslunni er fluttur úr landi og seldur á erlendum mörkuðum. Sú sala hefur ekki gengið sem skyldi að undanförnu vegna ytri aðstæðna sem íslenskir sauðfjárbændur hafa engu ráðið um. Útlit er fyrir að birgðir við upphaf sláturtíðar verði allt að 1.000 tonnum meiri en æskilegt væri. Áhrif af viðskiptadeilu Vesturveldanna og Rússa, lokun Noregsmarkaðar sem áður tók við um 600 tonnum og hátt gengi íslensku krónunnar eru helstu ástæðurnar. Þá hefur fríverslunarsamninur Íslands og Kína ekki enn verið virkjaður fyrir lambakjöt þótt rúm þrjú ár séu liðin frá undirritun.

Þessi staða er grafalvarleg eins og bændur hafa bent á. Margra mánaða viðræður við stjórnvöld um viðbrögð við aðsteðjandi bráðavanda hafa því miður litlu skilað. Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra hefur sagt að nýgerðum búvörusamningi megi kenna um það hvernig komið er. Enn er áhrifa hans ekki farið að gæta í framleiðslu á kindakjöti. Vinna við endurskoðun er hafin og á að ljúka 2019. Að henni koma bændur með opnum hug. Fjármálaráðherra og ríkisstjórnin öll hefur öll færi á að koma sínum áherslum þar að, en hann hefur enn ekki lýst neinu efnislega um þær breytingar sem hann vill sjá.

Landssamtök sauðfjárbænda hafa mótað vandaða framtíðarsýn til ársins 2027 sem er mikilvægt innlegg í þá vinnu. Mikilvægt er að stjórnvöld og stjórnmálamenn nýti einnig þá vinnu sem nú stendur yfir við endurskoðun búvörusamninga til að leggja fram sína framtíðarsýn.

Eftir sem áður verður að taka á bráðavanda greinarinnar án tafar. Annars er hætt við verulegri byggðaröskun á næstu misserum. Bændur hafa þegar lagt fram fjölda tillagna sem þeir vonast til að stjórnvöld taki afstöðu til. Mikilvægt er að stjórnvöld taki höndum saman með bændum við þetta verkefni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi