fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Ástandið aldrei verið jafn slæmt“

Röskun viðbúin í skólastarfi vegna manneklu – Vantar 1.300 leikskólakennara

Ritstjórn DV
Föstudaginn 11. ágúst 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veruleg röskun gæti orðið í skólastarfi á komandi vetri, bæði í leik- og grunnskólum, sökum manneklu. Ekki hefur tekist að manna lausar stöður í fjölda skóla og er staðan sögð hvað verst á suðvesturhorninu, á höfuðborgarsvæðinu. Þar vantar fólk í mjög marga, ef ekki flesta, grunnskóla og segja kennarar sem DV hefur rætt við að álag muni aukast verulega á þá sem þó verða við störf. „Þetta mun hafa áhrif á hvert einasta teymi sem starfar innan skólans,“ segir Ragnar Þór Pétursson, kennari við Norðlingaskóla. Aðspurður um stöðu mála þar segir hann „ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt.“

Stjórnendum grunnskóla er verulegur vandi á höndum nú þegar aðeins eru fáir dagar þar til skólastarf á að hefjast. Í fjölda skóla vantar kennara eða leiðbeinendur og segir Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, að mjög víða vanti þetta á bilinu einn og upp í þrjá kennara, í sumum tilfellum fleiri. Samkvæmt upplýsingum frá Menntmálastofnun hafa færri undanþágubeiðnir fyrir leiðbeinendur borist nú en í fyrra sem bendir til að skólastjórnendum muni ekki takast að brúa bilið með þeim hætti. Hætt er við að faglegt starf í skólunum muni hljóta skaða af og álag á kennara aukast verulega með tilheyrandi afleiðingum.

Auglýst eftir kennurum um miðjan júlí

Ragnar Þór er búsettur í Hafnarfirði og segir að staðan þar virðist slæm. Í skóla sonar hans, sem er að fara í annan bekk, vanti töluverðan fjölda kennara. „Ég sá á heimasíðu skólans að þar var verið að auglýsa eftir kennurum núna um miðjan júlí, það er mjög óvenjulegt. Yfirleitt er gengið frá slíku í maí, í síðasta lagi í byrjun júní. Svo bárust einnig skilaboð um að það tækist ekki að manna frístundina heldur. Það er svo sem ekki nýtt en það er áhyggjuefni.“

Ragnar Þór segir að það hafi verið vísbendingar í nokkur ár um að Hafnarfjörður yrði fyrsta stóra sveitarfélagið sem fyndi alvarlega fyrir manneklu í skólastarfi. „Þeim hefur ekki tekist að manna skólana með réttindakennurum, það hefur verið töluvert mikið af leiðbeinendum í skóla sonar míns og eflaust í öðrum skólum. Þetta var fáheyrt hér fyrir nokkrum árum, það var farið í átak í kringum aldamótin til að stórefla kennaramenntun og mennta þá leiðbeinendur sem voru við störf í skólunum. Á síðustu árum hefur þetta hægt og rólega sótt í sama far aftur. Það að verið sé að auglýsa núna þýðir að það fást ekki einu sinni leiðbeinendur til starfa og þetta er mjög alvarlegt.“

Kjarabarátta fælir frá

Ragnar Þór bendir á að kjarabarátta og átök síðasta vetur hafi í raun ekki verið leyst heldur eingöngu verið frestað um ár. Það sé því viðbúið að hörð kjaradeila gæti orðið í vetur. Við slíkar aðstæður, þegar á sama tíma er verulegt framboð af annarri vinnu, sé fjöldi fólks sem hverfi frá kennarastörfum í stað þess að eiga yfir höfði sér þá kjaraskerðingu sem hugsanlegt verkfall gæti haft í för með sér.

Kennarar leita í önnur störf

Svanhildur María segir rétt að verr gangi að manna stöður í grunnskólunum en áður. „Það var vottur af þessu í fyrra en nú í ár gengur þetta mun verr en áður. Ég heyri það hjá mínu fólki að það vanti í mjög marga skóla kennara, á Stór-Reykjavíkursvæðinu vantar mjög víða þetta einn til þrjá kennara eða leiðbeinendur. Þetta eru mjög margir skólar sem um ræðir, kannski ekki allir en mjög margir.“

Mynd: © Styrmir Kári

Svanhildur María segir að það sé óalgengt að auglýsa þurfi eftir kennurum á miðju sumri en það sé engu að síður staðan núna. „Þetta er ekki ósvipað og staðan var árið 2007, á hátindi síðustu efnahagsuppsveiflu, þegar okkur vantaði orðið fjölda fólks til kennslu. Fólk leitar í önnur störf, betur launuð og þar sem starfsumhverfi er betra. Fólk hefur ekki verið sátt við launin sín eða vinnuálag og hverfur því til annarra starfa. Þetta er mikið áhyggjuefni, bæði varðandi komandi vetur en einnig til framtíðar.“

Launin of lág og álagið of mikið

Ragnar Þór segir að staðan nú sé grafalvarleg, hann vill meina að árum saman hafi verið haldið illa á skólastarfi hér á landi. „Það hefur leitt af sér að við erum komin á mjög alvarlegan stað. Að okkur takist ekki, á þessum tímum þegar þjóðin hefur aldrei sótt í jafn miklu mæli í menntun, að þá séu menn einhvern veginn að gefast upp við að halda elstu menntuðu stétt landsins að störfum. Nýliðun er engin og fjöldi kennaramenntaðs fólks er ekkert á leið aftur í kennslu.“

Ragnar Þór segir að í kjarnanum snúist málið um að laun kennara séu of lág í samhengi við ábyrgð, álag og starfsumhverfi. Skólastefna í landinu sé handahófskennd og lítið innblásin. „Fólk í dag gerir ákveðnar kröfur um framgang í starfi, að takast á við verkefni, að vinna eftir langtímaskipulagi. Öll slík vinna hrekkur auðvitað upp á saumunum ef, í hvert sinn sem hér kemur góðæri, kennarar hverfa úr stéttinni og svo þarf að byrja allt upp á nýtt þegar kreppir að.“

Ragnar Þór segir að staðan í Norðlingaskóla, þar sem hann starfar, hafi aldrei verið svona slæm. Skólinn var settur á laggirnar haustið 2005 og hefur hann því farið í gegnum uppsveiflu, efnahagshrun og nú aftur uppsveiflu. „Ástandið núna er ekkert líkt því sem var í uppsveiflunni síðast, þá var slegist um lausar stöður við skólann. Nú er ekki búið að manna skólann, við erum að fara inn í veturinn og það vantar fólk. Það mun hafa áhrif á hvert einasta teymi sem starfar innan skólans og kennaraliðið mun finna umtalsvert fyrir því,“ segir Ragnar.

Spurður hvernig hann hyggist leysa málin með sinn son, ef ekki verður í boði frístundastarf fyrir hann þegar skólinn hefst, segir Ragnar Þór að hann hafi ekki hugmynd um hvernig hann leysi það. „Ætli það verði ekki endingin að taka börnin með í vinnuna, ég veit það ekki.“

Verulegan fjölda starfsmanna vantar á leikskóla fyrir komandi vetur.
Leikskólastarf í uppnámi Verulegan fjölda starfsmanna vantar á leikskóla fyrir komandi vetur.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Vantar 1.300 leikskólakennara

Sigurður Sigurjónsson, starfandi formaður Félags stjórnenda leikskóla, segir að mönnun á leikskólum fyrir komandi vetur sé mjög erfið. Staðan sé verst á höfuðborgarsvæðinu en þó sé einnig vöntun á starfsfólki víða úti á landsbyggðinni einnig, þó ekki alls staðar. Þar sem flestir leikskólakennarar séu starfandi, svo sem á Akureyri, sé staðan betri. Þar sem mikill fjöldi ófaglærðs starfsfólks sé við störf, í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu, sé ástandið mjög erfitt.

Sigurður bendir á að leikskólarnir hafi um langt skeið verið undirmannaðir og það auki á flótta úr störfum. „Það vantar um 1.300 menntaða leikskólakennara á landinu öllu til að uppfylla lög um leikskóla. Á meðan við höfum ekki réttindastarfsmenn á skólunum verður þessi vandi viðvarandi og eykst bara. Sveitarfélögin þurfa að gera sér grein fyrir þessum vanda og taka á honum. Það verður að bæta starfsaðstæður strax, fækka börnum á hvern starfsmann og draga þar með úr álagi og veikindadögum. Sveitarfélögin vissu að svona væri staðan og hefðu átt að vera búin að bregðast við. Það er ekki hægt að draga það lengur.“

Leiðbeinendur fást ekki til starfa

Samkvæmt upplýsingum frá Menntamálastofnun hafa borist 197 umsóknir um undanþágur til handa leiðbeinendum við grunnskóla. Á síðasta skólaári, 2016–2017 voru undanþágubeiðnir 313 talsins yfir árið allt. Erla Ósk Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Menntamálastofnun, segir að venjan sé sú að obbi umsóknanna berist frá maí og fram í ágústmánuð. Því sé ekki óvarlegt að ætla að kúfurinn sé kominn. Það bendi því til verulegs vanda í skólunum, að ekki einu sinni fáist leiðbeinendur til starfa, hvað þá réttindakennarar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis