Sekt fyrir að tala í síma undir stýri án handfrjálsbúnaðar mun hækka úr 5000 krónum í 40.000 krónur.
Frá þessu greinir Morgunblaðið og vitnar í skriflegt svar Jennýjar Heiðu Björnsdóttur skrifstofustjóra Ríkissaksóknara.
Sekt hefur ekki hækkað frá árinu 2006. Um 500 ökumenn eru sektaðir árlega fyrir að nota síma undir stýri.