Samkvæmt nýbirtum niðurstöðum Gallup um lestur prentmiðla jókst lestur á DV um 36% á milli mánaðanna maí og júní. Þannig mældist blaðið með 10,5% lestur í júní en hafði mælst með 7,7% lestur í maí. Í könnuninni mældist Fréttablaðið með mestan lestur eða 44,6%, Morgunblaðið með 25,7% og Viðskiptablaðið með 9,6% lestur.
Þetta er fyrsta lestrarmæling Gallup sem birtist eftir að útgáfudögum DV var fækkað og helgarblaðið stóreflt með tilkomu fylgiblaðsins Birtu. Þá hefur netmiðillinn dv.is verið í mikilli sókn undanfarin misseri og er þriðji vinsælasti netmiðill landsins, að jafnaði með um 90 þúsund daglega notendur og um 300 þúsund notendur í síðustu viku.
Starfsfólk DV er afar ánægt með góðar viðtökur og mun halda áfram að reyna að bæta og styrkja blaðið með hverri vikunni sem líður.