fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sækja um lóð fyrir parísarhjólið „Hjarta Reykjavíkur“

Hjólið verður mögulega hjartalaga – Samhliða er ráðgert að reisa skemmtigarð með íslenskar þjóðsögur sem þema

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 26. maí 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Marta og Úlfur Ingi Jónsson hafa farið þess á leit við borgaryfirvöld að þau úthluti fyrirtæki hjónanna, Reykjavik Eye Projects, viðeigandi lóð undir Reykjavík Eye – parísarhjól sambærilegt því sem er orðið eitt af kennileitum Lundúna. Hjónin sendu Degi B. Eggertssyni borgarstjóra formlegt erindi þann 9. maí síðastliðinn þar sem verkefnið var kynnt. Í umsókninni kemur fram að parísarhjólið gæti orðið hjartalaga og nefnst „Hjarta Reykjavíkur“. Nokkrar staðsetningar koma til greina, þar á meðal í Laugardal. Samhliða er reiknað með að byggður verði upp skemmtigarður sem byggist á íslenskum þjóðsögum og hjátrú. Erindinu var vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.

Sextán ára drengur með svipaða sýn

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkar hugmyndir kvikna. DV fjallaði um tíu athyglisverðustu hugmyndirnar í hugmyndasöfnun á vef Reykjavíkurborgar. Þar kom Tómas Helgi Bergs, 16 ára, með þá hugmynd að reisa parísarhjól sem einmitt yrði nefnt Reykjavík Eye. Sýn Tómasar Helga var sú að parísarhjólið mundi rísa við Hallgrímskirkjuturn og þannig væri hægt að fá meiri yfirsýn og taka betri myndir úr hjólinu en úr turninum fræga. Með því myndu skapast betri aðstæður til ljósmyndunar fyrir erlenda ferðamenn og Íslendinga.

Útsýnishjól og skemmtigarður

Verkefnið sem Marta og Úlfur Ingi hafa í huga er talsvert viðameira en hugmynd Tómasar Helga. Verkefnið er í raun tvíþætt. Annars vegar að reisa og reka stórt útsýnishjól á landi innan borgarmarka Reykjavíkur. Samhliða rekstri hjólsins er fyrirhugað að setja upp og starfrækja skemmtigarð sem höfða mun til allra aldurshópa. Meginþema skemmtigarðsins verður íslenskar þjóðsögur og hjátrú. Í umsókn hjónanna kemur fram „að þar verði boðið upp á líflega leiki, íþróttir og aðra afþreyingu sem öll fjölskyldan getur haft gagn og gaman af.“ Hugsanleg staðsetning hjólsins er óráðin en fjórar tillögur fylgdu með umsókn Reykjavik Eye Projects. Meðal annars að hjólið myndi rísa í Laugardalnum á því svæði sem Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn er.

Reykjavik Eye Projects hefur þegar tryggt sér einkarétt fyrir Ísland á samvinnu við fyrirtækið Saloria Architects Ltd. í Lundúnum en það vinnur að yfirhönnun sambærilegra verkefna í Asíu og Mið-Austurlöndum. Þá hefur Reykjavik Eye Projects einnig tryggt sér samstarf við fyrirtækið Starneth sem sérhæfir sig í hönnun, byggingu og uppsetningu útsýnishjóla. Þekktasta verkefni Starneth er einmitt London Eye sem flestir geta verið sammála um að hafi heppnast einstaklega vel.

Gæti orðið hjartalaga og heitið „Hjarta Reykjavíkur“

Lesendur sjá eflaust fyrir sér hringlaga parísarhjól en í umsókn Mörtu og Úlfs Inga kemur fram að svo þurfi alls ekki að vera. Ýmiss konar lögun önnur en hringur er í boði „sem gæti gefið Reykjavik Eye ákveðna sérstöðu og gert einkenni þess enn sterkara. Við höfum fengið staðfest frá fyrrnefndum samstarfsaðilum að hægt sé að setja upp hjartalag hjól, svo dæmi sé tekið. Slíkt hjól gæti orðið eitt af framtíðartáknum Reykjavíkur – „Hjarta Reykjavíkur“,“ segir í umsókn hjónanna.

Þá kemur fram að Reykjavik Eye yrði fyrsta stóra útsýnishjólið á Norðurlöndum og það nyrsta í heiminum.
Hæð hjólsins er ráðgerð þrír fjórðu hlutar af hæð London Eye. Gert er ráð fyrir lokuðum hylkjum á hjólinu sem verja mun gesti fyrir veðri og vindum. Hver hringur mun taka um 30 mínútur og standa vonir Mörtu og Úlfs Inga til þess að glæsilegt útsýni verði helsta aðdráttaraflið.

Hjónin Marta og Úlfur Ingi Jónsson hafa verið búsett í Lundúnum í tæp 25 ár. Þann tíma hafa þau verið í verslunarrekstri og ýmsu sem viðkemur nýtingu fasteigna. Þá hafa þau framleitt skó fyrir stóra tískurisa eins og Top Shop og Next. Í umsókn þeirra kemur fram að þessi bakgrunnur hafi verið kveikjan að Reykjavik Eye-verkefninu. „Þrátt fyrir búsetu erlendis erum við fyrst og fremst Íslendingar, stolt af okkar heimalandi og viljum taka þátt í að byggja upp innviði á Íslandi þannig að sem flestir geti notið góðs af,“ segir í umsókninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu