fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Blekking að virkja verði meira

Rafvæðingu landsins lokið fyrir löngu segir nýkjörinn formaður Landverndar

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. maí 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rafvæðingu landsins er lokið fyrir löngu. Það að segja að það verði að virkja því hér vanti rafmagn er auðvitað ákveðin blekking. Við framleiðum mest rafmagn hlutfallslega í heiminum, langtum meira en til dæmis Norðmenn sem þó eru engir amlóðar í þeim efnum. Ég get alveg fallist á að það sé í lagi að fara í smærri framkvæmdir og virkja á ákveðnum svæðum ef rafmagn skortir til dæmis fyrir orkuskipti svo draga megi úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, en stórvirkjana er hins vegar ekki þörf fyrir almenna notkun. Það hvernig við förum með rafmagn hér á landi, í hvað það er notað, það er mikið til pólitísk ákvörðun, og það er ekki þörf fyrir frekari framleiðslu á rafmagni hér á landi. Það væri miklu frekar mál að endurskoða í hvað við notum orkuna til framtíðar, þar sem 80 prósent hennar fara til stóriðju.“

Þetta segir Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur og nýkjörinn formaður Landverndar. Snæbjörn, sem er 33 ára, segir að honum finnist sem ungt fólk sé mjög vakandi þegar kemur að umhverfismálum. Hans kynslóð hafi meðal annars verið mjög virk í náttúruverndarbaráttu þegar deilurnar um Kárahnjúkavirkjun stóðu sem hæst og margir hafi haldið áfram í ýmsum félögum og verkefnum sem tengd séu umhverfis- og náttúruvernd. „Mér finnst kynslóðin á eftir mér líka vera að koma inn í þessi málefni af miklu afli, í alls konar formi. Til dæmis eru samtökin Ungir umhverfissinnar að gera frábæra hluti og það á við um mun fleiri. Þetta skilar sér allt inn í umræðuna og vekur fólk, við finnum það mjög vel í Landvernd, þar sem félögum hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum. Áherslan á náttúruna, umræðan um loftslagsmálin, allt er þetta að verða æ stærra í sniðum, sem er auðvitað afskaplega mikilvægt enda stærsta málefni sem mannkyn stendur frammi fyrir í samtímanum.“

„Af öllum þeim málefnum sem hafa vakið áhuga minn í gegnum tíðina er náttúruverndin það sem hefur rist langdýpst.“

Kárahnjúkadeilan áhrifavaldur

Snæbjörn segist sjálfur hafa dregist inn í harða umhverfis- og náttúruverndarumræðu þegar hann var í menntaskóla, einmitt í Kárahnjúkadeilunum. En áhugann á náttúrunni, vernd og viðgangi hennar, hafi hann haft allt frá því að hann var lítill. „Foreldrar mínir voru útivistarfólk og við ferðuðumst mikið um landið. Ég fór fyrst til útlanda þegar ég var fimmtán ára, sumrin voru nýtt í ferðalög innanlands, tjaldferðir og útilegur. Foreldrar mínir áttu svo sem sjaldnast bíla sem hentuðu til mikilla fjallaferða en þá komu afi og amma til skjalanna. Afi vann hjá Landsvirkjun allt frá stofnun þar til hann fór á eftirlaun og á sumrin fékk hann lánuð hús sem stóðu við virkjanir, Blönduvirkjun og Hrauneyjafossvirkjun til dæmis. Þannig að ég gisti í sumarhúsum við virkjanir Landsvirkjunar mörg sumur og þekki þær mjög vel.“

Þarf að beita sér fyrir hugsjónirnar

Snæbjörn segir að hann hafi alla tíð staðsett sig í hópi þeirra sem andæfa óheftum virkjanaframkvæmdum sem eingöngu hafi verið ráðist í til að tryggja rafmagn til mengandi stóriðju. „Ég hef kannski í gegnum tíðina minna einbeitt mér að þeim þáttum umhverfisverndar sem snúa til dæmis að plastnotkun eða meðferð á vatni en Landvernd er auðvitað mikið að fókusa á þau málefni líka. Ég hef kannski verið meira að spá í þá þætti sem fólk, að sumu leyti, tengir Landvernd kannski beint við. Þá á ég við þessa hörðu málaflokka, andstöðu við virkjanaframkvæmdir, stóriðjuframkvæmdir og háspennulínur. Ég hef staðsett mig þar alla tíð. En hitt mallar allt á bak við og verður sífellt stærra. Fyrir um það bil áratug tók ég mig til og las nánast allt sem ég komst í um loftslagsmál, loftslagsbreytingar og umhverfismál, í raun allt sem tengist náttúrunni og náttúruvernd. Af öllum þeim málefnum sem hafa vakið áhuga minn í gegnum tíðina er náttúruverndin það sem hefur rist langdýpst. Þegar maður hefur hugsjón og sannfæringu fyrir einhverju þá verður maður að standa undir því og beita sér til að hugsjónirnar fái framgang. Þess vegna vil ég skipa mér í framvarðarsveit þeirra sem berjast fyrir umhverfinu.“

„Náttúran er ekki afgangsstærð“

Eins og Snæbjörn nefnir hér að framan eru margir sem einkum tengja Landvernd við andstöðu við virkjanir, við háspennulínur og við ýmsar aðrar framkvæmdir, þar með talið vegaframkvæmdir. Það hefur orðið tilefni til deilna og til eru þeir sem finnst Landvernd fara ansi geyst og taka umhverfi fram fyrir efnahag og öryggi fólks, í atvinnu og samgöngum til að mynda. Þannig veiti stóriðja fólki atvinnu, á stöðum þar sem hennar sé mikil þörf. Snæbjörn svarar því til að það sé sjaldnast svo að framtíðarstörf skapist á þeim svæðum sem séu á áhrifasvæðum virkjana, til að mynda sé ekki í umræðunni að orka sem gæti orðið til við virkjun neðri hluta Þjórsár verði nýtt þar um slóðir. Þannig njóti þeir sem verði fyrir mestu raski og mestum óþægindum vegna framkvæmda ekki ávaxtanna af þeim. „En burtséð frá því er það auðvitað þannig að atvinnuuppbygging getur ekki orðið á kostnað umhverfisins umræðulaust. Náttúran er ekki afgangsstærð.“

Virkjanir eru ekki sjálfbærar

Spurður hvort að til sé einhver sú græna stóriðja sem væri boðlegt að yrði byggð upp á Íslandi, með endurnýjanlegri orku, bendir Snæbjörn á að því hafi af sumum verið haldið fram að kísilver væru slíkar stóriðjur, eða í það minnsta umhverfisvænni en margt annað. „Það var hins vegar blekking. Kísilverum fylgir kolabrennsla og mengun, það hefur sannast rækilega í Helguvík þar sem kísilver United Silicon hefur valdið íbúum miklu angri, lyktarmengun og óþægindum. Sumir hafa nefnt gagnaver, það er að sönnu hugsanlegt. Þar er enda ekki verið að flytja hráefni til og frá landinu með tilheyrandi kolefnisfótspori, heldur eru gögn bara flutt um streng. Það er auðvitað ansi mikið skárra en þegar súrál er flutt til landsins frá Jamaíku og ál flutt frá landinu, kannski til Ástralíu. En stóriðja verður aldrei græn ef virkjanirnar sem framleiða rafmagnið eru ekki sjálfbærar. Og það á því miður við um virkjanir hér á landi, þrátt fyrir að orkan í fallvötnum sé endurnýjanleg. Umhverfisáhrifin við byggingu vatnsaflsvirkjana eru gríðarleg og þá eru jarðhitavirkjanir hér á engan hátt sjálfbærar, það hafa dæmin sannað.“

Deilurnar snúast um kostnað

Eru þá engin sársaukamörk þegar kemur að umhverfisvernd, verður náttúran að hafa forgang hvað sem tautar og raular. Nei, það er ekki alveg svo, segir Snæbjörn. „Það eru vitanlega einhver sársaukamörk í umhverfisvernd, það verður að vera. Til að mynda varðandi vegalagningu þá verður öryggi að vera í forgangi. Hins vegar snúast deilur oftast um kostnað og þá eru margir tilbúnir að fórna náttúrunni með þeim rökum að það sé einfaldlega of kostnaðarsamt að vernda hana, að fara þá leið sem kostar meira en skemmir minna. Til að að mynda varðandi Teigsskóg, leirur og sjávarfitjar á Vestfjörðum, þar er jarðgangaleið um fjórum milljörðum dýrari. En umhverfisáhrifin eru hins vegar ótvírætt miklu minni af gangaleiðinni. Þess vegna hefur Landvernd lagst gegn því að farin verði sú leið sem Vegagerðin leggur til við Teigsskóg, og raunar hefur Skipulagsstofnun verið sammála því mati Landverndar. Við getum ekki gefið afslátt af náttúruverndarkröfum, ekki þegar aðrar leiðir eru færar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi