fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Þetta er ríkasta fólkið í Evrópu

Amancio Ortega ber höfuð og herðar yfir aðra í úttekt Sunday Times

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 18. maí 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska blaðið Sunday Times birti á dögunum árlegan lista yfir ríkustu einstaklinga heims, en sjónum var einkum beint að auðmönnum í Bretlandi. Eins og DV fjallaði um á þriðjudag var Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir í 89. sæti yfir ríkustu einstaklinga Bretlands með eignir metnar á 1,45 milljarða punda, rétt tæplega 200 milljarða króna. Í blaðinu var einnig fjallað um aðra milljarðamæringa á meginlandi Evrópu. Hér að neðan má sjá stutta samantekt yfir ríkustu Evrópubúana samkvæmt úttekt Sunday Times.


1.) Amancio Ortega

Auðæfi: 8.764 milljarðar
Aldur: 81

Spánverjinn Amancio Ortega ber höfuð og herðar yfir aðra Evrópubúa á lista Sunday Times. Auðæfi hans eru talin vera tæplega tvöfalt meiri en auðæfi næsta manns á listanum. Ortega er stofnandi Inditex-fatafyrirtækisins sem er einna best þekkt fyrir eignarhald á verslunarkeðjunni Zöru.


Mynd: Ecole polytechnique

2.) Bernard Arnault

Auðæfi: 4.858 milljarðar
Aldur:68 ára

Arnault er stjórnarformaður og innsti koppur í búri hjá hjá franska fyrirtækinu LVMH, sem á fjölmörg fyrirtæki sem framleiða lúxusvarning. Meðal þeirra má nefna tískufyrirtækið Louis Vuitton auk kampavínsframleiðandans Moët og Chandon og koníaksframleiðandans Hennessy svo dæmi séu tekin. Það þarf vart að taka það fram að Arnault er ríkasti maður Frakklands.


3.) Sergey Brin

Auðæfi: 4.610 milljarðar
Aldur: 43 ára

Sergey, sem fæddur er í Sovétríkjunum en með rússneskt og bandarískt ríkisfang, er líklega best þekktur fyrir að vera meðstofnandi Google ásamt Larry Page. Brin er forseti Alphabet Inc., sem er móðurfélag Google. Brin er fjórtándi ríkasti maður heims samkvæmt úttekt Sunday Times.


Mynd: Mynd Reuters

4.) Liliane Bettencourt

Auðæfi: 4.389 milljarðar
Aldur: 94 ára

Liliane Bettencourt er stundum kölluð guðmóðir L‘Oréal snyrtivöruveldisins, en hún er erfingi þessa stóra fyrirtækis sem faðir hennar stofnaði árið 1909. Fyrirtækið er til dæmis fyrirferðarmikið á sviði hárvöru og annarrar snyrtivöru. Fyrirtækið er eitt það stærsta á sínu sviði í heiminum. Bettencourt og börn hennar fara með þriðjungshlut í fyrirtækinu.


5.) Stefan Quandt og Susanne Klatten

Auðæfi: 4.251 milljarður
Aldur: 50 og 55 ára

Systkinin Stefan Quandt og Susanne Klatten eru talin vera ríkustu Þjóðverjarnir. Þau eru erfingjar BMW-ökutækjaframleiðandans en faðir þeirra er af mörgum talinn hafa bjargað fyrirtækinu frá vísu gjaldþroti upp úr miðri 20. öldinni og gert það að því veldi sem það er í dag.


6.) Karl Albrecht Jr., Beate Heister og fjölskylda

Auðæfi: 4.209 milljarðar

Systkinin eru börn Þjóðverjans Karls Albrecht sem stofnaði smásölurisann Aldi árið 1946 ásamt bróður sínum. Fyrirtækið rekur í dag 10 þúsund verslanir í átján löndum og veltir tugum milljarða evra á ári hverju. Albrecht eldri lést árið 2014 og erfðu systkinin auðæfi föður síns.


Mynd: EPA

7.) Ingvar Kamprad og fjölskylda

Auðæfi: 3.864 milljarðar
Aldur: 91 árs

Ingvar Kamprad þekkja eflaust margir Íslendingar en hann er maðurinn á bak við IKEA-veldið sem hann stofnaði árið 1943. Þrátt fyrir ríkidæmi sitt er Ingvar nægjusamur og spreðar hann peningunum sínum ekki í neinn óþarfa. Kamprad sagði sig úr stjórn IKEA árið 2013 og tóku synir hans þrír við keflinu hjá IKEA.


8.) Henkel-fjölskyldan

Auðæfi: 3.105 milljarðar

Henkel-fjölskyldan í Þýskalandi rekur samnefnda verslunarkeðju sem framleiðir vörur til neytenda og til notkunar í iðnaði. Meðal þess sem fyrirtækið framleiðir má nefna Persil-þvottaefni og Scwarzkopf-hárvörur. Fyrirtækið velti 18 milljörðum evra á síðasta ári og rúmlega 50 þúsund manns starfa fyrir fyrirtækið.


9.) Axel Dumas

Auðæfi: 3.064 milljarðar
Aldur: 46 ára

Dumas er framkvæmdastjóri og stjórnarformaður franska lúxusvörufyrirtækisins Hermés sem stofnað var árið 1837. Undir hans stjórn hefur velgengni fyrirtækisins aukist gríðarlega en Dumas tók við stjórnartaumunum árið 2013. Veltan eftir fyrsta ár hans í starfi nam 4 milljörðum evra.


10.) Maria Franca Fissolo

Auðæfi: 2.857 milljarðar
Aldur: 76 ára

Fissolo er ekkja Michele Ferrero sem var eigandi súkkulaðifyrirtækisins Ferrero SpA. Faðir Michele stofnaði fyrirtækið árið 1946, en í dag er Ferrero líklega einna best þekkt fyrir framleiðslu sína á Kinder-eggjum og Nutella.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni