Fimm hafa nú verið handteknir í tengslum við árásina
Fimm manns hafa verið handteknir í tengslum við árásina í Stokkhólmi á föstudaginn og yfir 500 manns hafa verið yfirheyrðir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Stokkhólmi var búið að vísa manninum, sem var handtekinn á föstudag grunaður um að hafa orðið fjórum manns að bana þegar hann ók vörubifreið inn í mannfjölda við verslunamiðstoð í borginni, úr landi en hann sótti um dvalarleyfi árið 2014 sem var synjað í júní á síðasta ári.
Borin hafa verið kennsl á fólkið sem lést í árásinni. Það voru tveir sænskir ríkisborgarar, breskur maður og belgísk kona. Tíu manns liggja á sjúkrahúsi eftir árásina. Þar af eru fjórir alvarlega slasaðir.
Lögreglan leitar enn að hugsanlegum vitorðsmönnum.