Talskona Stígamóta vill eiga samstarf við félagsmálaráðherra um átak gegn nauðgunum
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fagnar mjög afdráttarlausum svörum Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um þjóðarátak gegn nauðgunum og kynferðisofbeldi. Guðrún kallaði eftir slíku átaki í frétt DV síðastliðinn þriðjudag þar sem lýsti því yfir að nú væri nóg komið. Þorsteinn tók í sömu frétt undir með Guðrúnu, og sagðist tilbúinn að stíga fram og taka forystu í þeim efnum.
„Ég var að lýsa því að það væri þörf á þjóðarátaki, án þess að við hjá Stígamótum eða ég persónulega myndi leiða það. Ég fagna því þess vegna mjög hvernig Þorsteinn tekur í þetta og við viljum gjarnan eiga samstarf við hann og aðra um slíkt átak,“ segir Guðrún. Hún bætir því við að víðtækri samstöðu þurfi að ná um átak af þessu tagi, á mörgum vígstöðvum og með aðkomu margra aðila. „Ég fagna því, eins og ég segi, viðbrögðum Þorsteins og hlakka til að sjá hvernig hann mun taka á þessu máli.“
Guðrún segir að Þorsteinn hafi boðið henni á fund skömmu eftir að hann settist í ráðherrastól. „Mér þótti það vel gert, hann var augljóslega tilbúinn að hlusta á okkur. Síðan þá hef ég boðið honum til okkar í heimsókn sem hann þáði. Það hefur ekki enn orðið af þeirri heimsókn en hún stendur fyrir dyrum á næstunni. Þetta er væntanlega eitt af því sem við munum ræða við hann þá, átak sem þetta og aðkoma aðila að því.“
Hvað varðar viðbrögð hinna ráðherrana þriggja segir Guðrún að þau séu ekki jafn afdráttarlaus og Þorsteins en það sé þó hægt að greina í þeim jákvæðar línur. Efndir þurfi hins vegar að fylgja orðum. „Sýnið mér fjármagnið og mannaflann og þá skal ég klappa. Við fögnum því alltaf þegar við náum eyrum fólks og ráðamanna og það er tilbúið að starfa með okkur.“