fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Beitt ofbeldi en fá enga aðstoð

Friðargæsluliðar beittu börn kynferðisofbeldi – Sum búa á götunni tveimur árum síðar

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 6. apríl 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef ekki fengið neina aðstoð,“ segir David, sautján ára unglingspiltur sem býr á götunni skammt frá flugvellinum í Bangui, höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins. David er eitt þeirra barna sem varð fyrir kynferðisofbeldi af hálfu franskra friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna. Kynferðisbrotin komust í hámæli árið 2015 þegar skýrslu um málið var lekið til fjölmiðla.

Lofuðu öllu fögru

Eftirmálarnir voru nokkrir; Andreas Kompass, framkvæmdastjóri aðgerða á skrifstofu mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, sagði starfi sínu lausu eftir að hann var sakaður um að hafa lekið skýrslunni til franskra yfirvalda. Andreas ofbauð aðgerðarleysi Sameinuðu þjóðanna og ákvað því að taka til sinna ráða.

Eftir að skýrslan komst í hámæli lofuðu Sameinuðu þjóðirnar því að allt yrði gert til þess að fórnarlömbum ofbeldisins yrði hjálpað á allan mögulegan hátt. Ef marka má umfjöllun sænska fréttaskýringaþáttarins Uppdrag Granskning á dögunum hefur lítið, ef eitthvað, af því staðist. Sum fórnarlambanna, enn börn að aldri, eru heimilislaus og er David einn þeirra. „Hér er enginn sem hjálpar okkur. Við reynum að komast af upp á eigin spýtur; vöskum upp fyrir fólk, sækjum vatn fyrir fólk og þrífum bíla. Þannig höfum við í okkur og á,“ segir hann.

Líklega enginn ákærður

Brotamennirnir sem um ræddi voru úr svokallaðri Sangaris-friðargæslusveit sem heyrði ekki beint undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Síðar komu frekari ásakanir fram í dagsljósið, sem meðal annars vörðuðu friðargæsluliða frá Austur-Kongó og Benín. Skýrslan vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og hrikti í stoðum Sameinuðu þjóðanna.

Francois Holland Frakklandsforseti hét því að hinum seku yrði ekki sýnd nein miskunn. Talið er ólíklegt að nokkur verði ákærður.
Frakklandsforseti Francois Holland Frakklandsforseti hét því að hinum seku yrði ekki sýnd nein miskunn. Talið er ólíklegt að nokkur verði ákærður.

Mynd: EPA

Francois Hollande Frakklandsforseti hét því að friðargæsluliðunum yrði ekki sýnd nein miskunn og þá lofuðu Sameinuðu þjóðirnar því að fórnarlömbin fengju alla nauðsynlega aðstoð. Nú, tveimur árum síðar, hefur enginn af frönsku friðargæsluliðunum verið dreginn til ábyrgðar og að sögn breska blaðsins The Guardian er ólíklegt að nokkur verði ákærður.

Helmingur börn

Talið er að um 80 einstaklingar hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu friðargæsluliða í landinu á árunum 2014 til 2016. Helmingur þessara einstaklinga var börn þegar brotin voru framin og minnst níu stúlkur urðu óléttar eftir ofbeldið.

„Við reynum að komast af upp á eigin spýtur; vöskum upp fyrir fólk, sækjum vatn fyrir fólk og þrífum bíla. Þannig höfum við í okkur og á.“

Ein þeirra er Martha, fjórtán ára stúlka, sem varð ólétt í janúar 2015. Friðargæsluliði á fertugsaldri frá Austur-Kongó nauðgaði henni. Í umfjöllun The Guardian kemur fram að Martha hafi komist í kynni við manninn eftir að faðir hennar var myrtur. Maðurinn lofaði öllu fögru, gaf henni mat og peninga og sagðist ætla að kvænast henni. Síðar kom á daginn að Martha hafði smitast af HIV-veirunni, Sameinuðu þjóðirnar komust í málið og var friðargæsluliðinn sendur heim í kjölfarið. Eftir stóð Martha, fjórtán ára einstæð móðir, sem þurfti nú að hugsa um nýfætt barn sitt og hætta í skóla.
Þegar Uppdrag Granskning ræddi við hana í janúar sagði hún að forsvarsmenn Sameinuðu þjóðanna hefðu til þessa dags gefið henni hrísgrjónapoka, mjólk, sykur og um tvö þúsund krónur í peningum.

Mögulega misbrestir

Að sögn The Guardian áttu forsvarsmenn Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, að fylgja því eftir að börnin fengju aðstoð. Forsvarsmenn UNICEF voru þó ekki meðvitaðir um að börnin í Mið-Afríkulýðveldinu hefðu ekki fengið neina aðstoð. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá fara fulltrúar okkar vikulega og hitta þessi börn,“ sagði Aboubacry Tall, fulltrúi UNICEF í Mið-Afríkulýðveldinu. Tall bætti við að mögulega séu misbrestir á þessu í einhverjum tilfellum.

Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem kom út í febrúarmánuði, kom fram að 145 tilfelli kynferðisofbeldis friðargæsluliða hefðu komið upp í fyrra. Þetta er aukning upp á 46 prósent frá árinu 2015 þegar 99 tilfelli komu upp. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði fyrr í þessum mánuði að tekið yrði fastar á málum sem þessum og ríkari áhersla verði lögð á að hjálpa þeim börnum sem beitt eru ofbeldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“