Gistinætur ferðmanna voru 5,2 milljónir í fyrra
„Reynsla ferðamanna af Reykjavík árið 2016 var mjög jákvæð en níu af hverjum tíu sumargestum og tæplega 92% gesta vetrargesta töldu reynsluna af borginni frábæra eða góða. Einungis 1% töldu hana slæma. Ferðamenn segjast ætla að mæla með borginni við aðra eða 96% gesta utan sumartíma og 94% sumargesta. Erlendir gestir borgarinnar eru ánægðastir með sundlaugarnar af þeim þáttum sem spurt var um,“ segir í fréttatilkynningu frá Höfuðborgarstofu.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RFF) framkvæmdi fyrir Höfuðborgarstofu árið 2016. Könnunin var gerð meðal erlendra brottfaraþega í Leifsstöð en alls fengust þrjú þúsund gild svör. Niðurstöðurnar eru jafnframt fengnar úr greinagerð sem byggir á sambærilegum könnunum (RFF) fyrir Höfuðborgarstofu í þrettán ár eða frá 2004-2016.
Þá kemur fram að á síðasta ári komu tæplega 1,8 milljónir gesta til landsins. Langflestir þeirra eða um níu af hverjum tíu gistu í Reykjavík og að jafnaði í fjórar til sex nætur. Samkvæmt því voru gistinætur í borginni í fyrra um 5,2 milljónir og má lauslega áætla að ferðamenn hafi eytt 160 milljörðum króna miðað við fjölda gistinátta og 30 þúsund kr. meðalútgjöld á dag,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að þá séu ekki tekjur fyrirtækja sem staðsett eru í Reykjavík og gera út á ferðir um allt land eða eru með aðra ferðaþjónustustarfsemi á landsvísu. „Það er því verðugt rannsóknarefni að skoða betur heildarhagsmuni Reykjavíkur af ferðaþjónustu og margfeldisáhrif þessarar sívaxandi atvinnugreinar fyrir borgina.“
+Þrátt fyrir sívaxandi fjölda ferðamanna í Reykjavík er ánægja þeirra með áfangastaðinn mikil og hefur viðhorf þeirra til einstakra þátta verið svipuð ár frá ári sem er virkilegt gleðiefni. Ákveðnar vísbendingar eru um að ánægjan sé örlítið að lækka á vissum þáttum afþreyingar í borginni eins og með veitingastaði og verslun og er afar líklegt að styrking krónunnar hafi þar áhrif á. Á heildina litið eru ferðamenn þó mjög ánægðir með áfangastaðinn Reykjavík og allt að 96% þeirra segjast ætla að mæla með Reykjavík við vini og fjölskyldu. Það segir okkur að við tökum vel á móti gestum okkar sem íbúar og áfangastaður. Niðurstöðurnar eru ánægjulegar fyrir borgina og íbúa hennar,“ segir Áshildur Bragadóttir, forstöðukona Höfuðborgarstofu, um niðurstöðurnar.
80% ferðamanna höfðu farið á veitingahús í Reykjavík, en það hlutfall hefur farið hækkandi undanfarin ár.
Veitingahúsin fengu meðaltals einkunn uppá 8 frá gestum. Ánægja gesta er að aukast frá ári til árs.
60% gesta sögðust hafa verslað í höfuðborginni. Það hlutfall fer einnig vaxandi sem og ánægja gesta með veitingastaðina.
Ríflega þriðjungur gesta fór í skipulagða dagsferð frá Reykjavík á síðasta ári og er mikil ánægja með þær. Meðaltals einkunn 8,5.
Ferðamenn eldri en 55 ára segist frekar sækja söfn og sýningar en yngri hópurinn. Yngra fólkið fór hins vegar frekar í sund en alls fóru þrír af hverjum tíu fór í sund. Frá því mælingar hófust hefur sund fengið hæstu meðaleinkunnina af þeim afþreyingarmöguleikum sem spurt er um eða um 8,6.