Tyllti sér á brautarteinana – Þrjár lestarleiðir lágu niðri
Um kvöldmatarleytið í gær [laugardag] flaug svanur á járnbrautarteina í Berlín með þeim afleiðingum að fjöldi lesta tafðist. Berliner Zeitung greinir frá þessu í frétt sinni.
Lestarstjórinn náði rétt svo að nema staðar í tæka tíð, en allri umferð á sporinu var lokað.
Atvikið átti sér stað í grennd við dýragarð, en á umræddri lestarleið er stoppistöð kennd við hann og á svanurinn að hafa flogið þaðan.
Lögreglumenn hröðuðu sér á vettvang. Þeir komu fuglinum til bjargar og fóru því næst með hann á nálæga slökkviliðsstöð.
Uppákoman olli talsverðum töfum á lestarsamgöngum í Berlín, en samtals lágu þrjár leiðir niðri. Sporið sem svanurinn flaug á tengir saman Friedrichstraße og Tiergarten, tvær stórar stöðvar í borginni.
Opnað var fyrir umferð á sporinu skömmu síðar, er lögregla hafði lokið björgunaraðgerðum. Að sögn hennar særðist svanurinn ekki alvarlega.