fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Benedikt: Skattur verður hækkaður – „Þetta er auðvitað ákvörðun sem stendur”

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 28. apríl 2017 10:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson efnhags- og fjármálaráðherra var gestur hjá Birni Inga Hrafnssyni í sjónvarpsþættinum Eyjan á ÍNN í gærkvöldi. Víða var komið við í tæplega 40 mínútna löngu viðtali. Ráðherrann fór yfir ýmis mál en eitt af því sem var rætt var fyrirhuguð aukning á prósentustigi virðisaukaskatts í ferðaþjónustu sem er ein af forsendum í nýrri fjárhagsáætlun ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram á Eyjunni.

Björn Ingi greindi frá því að þegar hann tilkynnti að fjármálaráðherra yrði gestur þáttarins hefðu reiðir og áhyggjufullir ferðaþjónustuaðilar haft samband við hann. Björn Ingi sagði:

„Menn segja einfaldlega að verði þetta að veruleika í óbreyttri mynd þá geti það verið tilræði við ferðaþjónustuna. Og þeir segja líka: Það var ekkert samráð haft við ferðaþjónustuna um þetta mál. Þetta var bara kynnt skömmum fyrirvara og gert ráð fyrir þessu í áætluninni. Er þetta ekki rétt?“

Benedikt svaraði og sagði að laun hefðu hækkað í öllum íslenskum atvinnugreinum. Gengið hefði styrkst en áskoranir vegna þess ættu við allar aðrar greinar í útflutningi. Bætti hann við að ferðaþjónustan væri búin að vera í lægra þrepi virðisaukaskatts sem væri ívilnandi fyrir greinina. Hann tók ákveðið af öll tvímæli um það að virðisaukaskattsprósentan í ferðaþjónustunni yrði hækkuð.

„Þetta er auðvitað ákvörðun sem stendur. Menn verða að ná endum saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat