fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Trump fundar með öllum 100 öldungardeildarþingmönnum

Ástæðan er ástandið á Kóreuskaganum

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 25. apríl 2017 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun, miðvikudag, munu allir 100 öldungadeildarþingmenn Bandaríkjanna fara á fund Donald Trumps forseta í Hvíta húsinu. Ástæðan fyrir þessu óvenjulega fundarboði er ástandið á Kóreuskaganum og munu helstu forsvarsmenn stjórnar Trumps fræða öldungadeildarþingmennina um nýjustu atburði og fyrirhugaðar aðgerðir gegn Kim Jong-un og stjórn hans. Fundurinn hefst klukkan 19 annað kvöld á íslenskum tíma.

Fundurinn var færður í Hvíta húsið

Þeir sem taka á móti hópnum eru utanríkisráðherrann Rex Tillerson, varnarmálaráðherrann Jim Mattis, yfirmaður þjóðaröryggisráðsins Dan Coats og yfirmaður hersins, Joseph Dunford hershöfðingi. Þessi greindi Sean Spicer, blaðamannafulltrúi Trump frá á mánudag. Reuters greinir frá.

Upphaflega stóð til að fundurinn yrði haldinn í þinghúsinu en hann var færður í Hvíta húsið að undirlagi Trump forseta. Það þykir sæta tíðindum að allir öldungadeildarþingmenn séu boðaðir á slíkan fund en þetta þykir renna stoðum undir þá orðróma að fyrirhugað séu aðgerðir til að stemma stigu við uppgangi Norður-Kóreu. Auk þess vilji Bandaríkjamenn senda skilaboð til Pyongyang að óbreytt ástand sé ekki lengur ásættanlegt.

Hafa valdið miklum titringi

Kjarnavopna og eldflaugatilraunir Norður-Kóreu hafa valdið miklum titringi víða um heim og hefur ástandið í þessum heimshluta ekki verið jafn eldfimt lengi.

Trump hringdi í leiðtoga Kína og Japan um helgina og sagði fulltrúum í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna að eitthvað yrði að gera og ekki væri lengur stætt á því að leyfa Kim Jong-un að vaða uppi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“