fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Verzló vinsælastur hjá nemendum sem ljúka grunnskóla í vor

88 prósent 10. bekkinga sóttu um nám í framhaldsskóla í haust

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 19. apríl 2017 07:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinsælasti framhalddskólinn hjá þeim nemendum sem ljúka grunnskóla í vor er Verzlunarskóli Íslands. Forinnritun 10. bekkinga í framhaldsskóla fyrir haustönn 2017 lauk 10. apríl síðastliðinn. Alls bárust umsóknir frá 88 % nemenda.

Í umsóknarferlinu sækja nemendur um tvo skóla og velja sér jafnframt tvær námsbrautir innan hvors skóla fyrir sig.
Flestar umsóknir bárust til Verzlunarskóla Íslands, Kvennaskólans í Reykjavík, Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund. Þetta kemur fram á vefsvæði Menntamálastofnunnar.

482 settu Verzlunarskólann í fyrsta val og 162 í annað val en 280 nýnemapláss eru laus þar í haust. Hér að neðan má sjá töflu yfir fjölda umsókna í þá skóla sem flestir sóttu um að komast í.

Þessir skólar fengu flestar umsóknir í forinnritun í vor
Skjáskot af vef Menntamálastofnunnar Þessir skólar fengu flestar umsóknir í forinnritun í vor
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“