fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Prestur bað brúðhjón að giftast í annarri kirkju

Hætt var við tvö brúðkaup í Saurbæjarkirkju í Hvalfirði vegna tónleika Megasar

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 17. apríl 2017 15:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í páskablaði DV sem kom út þann 11. apríl síðastliðinn voru rifjaðar upp gömul fréttamál sem voru í deiglunni á þeim degi fyrir nokkrum árum. Hér gefur að líta yfirlit yfir nokkrar þeirra.


DV: 2007: Sóknarpresturinn Saurbæjarkirkju óskaði eftir því við tvenn brúðhjón að þau leituðu annað vegna þess að bókaðir voru tónleikar í kirkjunni á sama tíma. Um var að ræða tónleika með Megasi þar sem hann flutti Passíusálmana. Síðastliðin laugardag gengu brúðhjónin í hjónaband, annars vegar í Akraneskirkju og hins vegar Seltjarnarneskirkju, og eru bæði alsæl með hvernig til tókst. „Við vorum löngu búin að boða gesti og gera allar ráðstafanir í tengslum við brúðkaupið. Okkur var einfaldlega úthýst og sagt að við þyrftum sjálf að redda þessu, án þess að vera boðin nokkur aðstoð. Það fannst okkur eiginlega sárast og tilfinningin sú að presturinn hafi aðeins verið að hugsa um að bjarga eigin skinni,“ segir Ásdís Hauksdóttir, önnur nývígðu brúðanna. „Það er bæði rosalega skrítið og óforskammað að svona skuli gerast hjá kirkjunni. Biskupsstofa var mjög hissa á þessu en prófasturinn í héraðinu gerði ekkert fyrir okkur. Þarna þurftum við að gjalda mistaka annarra og okkur fannst dáldið súrt að vera beðin um að víkja. Það var stórmál og hefði getað endað mjög illa, sem betur fer náðum við að bjarga þessu sjálf.“

Á ekki að gerast

Ása Einarsdóttir, hin nývígða brúðurin, tekur undir og segir það hafa komið henni á óvart að hafa ekki fengið aðstoð við að gera aðrar ráðstafanir. Hún segir brúðkaupsdaginn hafa verið yndislegan. „Auðvitað kom þetta sér illa fyrir okkur. Við fengum aðra kirkju en þurftum sjálf að standa í öllum reddingum. Brúðkaupsdagurinn var hins vegar alveg frábær og maður er alveg á bleiku skýi,“ segir Ása Einarsdóttir. Eðvarð Ingólfsson, prestur í Akraneskirkju, undrast að þessi tilvik hafi komið upp því mikilvægt sé að kirkjulegar athafnir standist að fullu. Hann segir almennar vinnureglur kirkna þær að tvíbókanir eigi ekki að geta átt sér stað. „Maður gætir þess vel og vandlega að tvíbóka aldrei og þetta á ekki að geta gerst. Það er mjög eðlilegt að kirkjulega athafnir, líkt og gifting, gangi fyrir öðrum atburðum því þetta eru svo stórir atburðir í lífi fólks. Hvað mig varðar þá mætir maður jafnvel með fjörtíu stiga hita til þess að láta allt standast,“ segir Eðvarð Ingólfsson.

Farsæl lausn

Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur Hallgrímskirkju í Saurbæ, segir engum hafa verið vísað frá heldur hafi einfaldasta lausnin verið að spyrja brúðhjónin. Aðspurður segir hann tónleikana hafa verið bókaða síðar en giftingarnar. „Þetta var bara klaufaskapur að kirkjan hafi verið tvíbókuð og í fyrsta sinn sem þetta kemur fyrir hjá mér. Búið var að leggja mikla vinnu í tónleikana og því einfaldast að spyrja brúðhjónin hvort þau væru tilbúin til að færa sig. Þau voru til í það og þannig leystist málið,“ segir Kristinn Jens. „Það var engum vísað frá, ég bara spurði brúðhjónin hvort þau væru til í þessa leið. Þau voru tilbúin til að leysa þetta með okkur og fyrir það erum við ákaflega þakklát. Sem betur fer leystist þetta farsællega og í sameiningu allra aðila,“ segir Kristinn Jens.

Franklín Steiner fær 25 mánaða fangelsi

  • Refsiþyngjandi að hann er talinn hafa tafið málið með „marklausu vitni“
Frá réttarhöldunum í máli Franklíns Steiners. Franklin mætti ekki í dómsuppkvaðninguna.
Frá réttarhöldunum í máli Franklíns Steiners. Franklin mætti ekki í dómsuppkvaðninguna.

DV: 1997 – Franklín Steiner, fimmtugur Hafnfirðingur, var í gær dæmdur í rúmlega tveggja ára fangelsi fyrir að hafa ætlað 252 grömm af amfetamíni og 139 grömm af hassi til sölu í ágóðaskyni en efnin fundust á heimili hans, í húsagarði og í bíl hans að kvöldi 13. apríl 1996. Auk langs sakaferils tók dómurinn mið af því við refsiákvörðun að Franklín „tafði nokkuð framgang“ refsimálsins. Tafirnar eru ekki nánar skýrðar í dómnum en hins vegar er nákvæmlega tíundað í niðurstöðum hans hvernig vitni gaf sig fram í fyrstu réttarhöldum málsins í desember síðastliðnum – maður sem sagðist eiga þau fíkniefni sem fundust á heimili Franklíns. Eftir þetta þurfti að fara fram ítarleg sérrannsókn. Niðurstaða ríkissaksóknara og nú dómsins hefur síðan orðið á þá leið að framburður vitnisins er metin sem „markleysa og ekki byggt á honum í málinu“, eins og dómurinn segir. Eins og fram hefur komið í DV viðurkenndi Franklín við fyrstu yfirheyrslur í apríl ’96 að hann ætti efnin eða öllu heldur að hann „tæki þetta á sig“. Við réttarhöld í desember kvaðst hann síðan ekki eiga efnin. Hann kvaddi síðan til vitni sem sagðist eiga meirihluta.

Rannsókn RLR leiddi í ljós fjölda augljósra atriða sem þóttu sýna fram á að framburður vitnisins stangaðist verulega á við staðreyndir málsins, s.s. felustað, tímasetningar, umbúðir fíkniefnanna og fleira. Franklín Steiner mætti ekki í dómsuppsögu í gær. Þegar dómurinn var kveðinn upp lýsti Hilmar Ingimundarson, verjandi hans, því yfir að skjólstæðingur hans hefði ekki verið boðaður. Dómurinn tekur ekki gildi strax enda hefur ákvörðun ekki verið tekin um það hvort dómnum verður unað eða honum verður áfrýjað.

Guðmundur L. Jóhannesson kvað upp dóminn. Í málinu var Franklín einnig ákærður fyrir brot á sérlögum með því að hafa haft 17 skotvopn á heimili sínu og 10 bit- eða eggvopn, s.s. byssustingi og sverð. Niðurstaðan varð sú að aðeins eitt skotvopnanna væri sannanlega virkt og því var Franklín sakfelldur fyrir vörslu á því svo og að hafa ekki haft margfrægt skotvopnaleyfi sem til þarf. Hin skotvopnin 16 voru ekki dæmd upptæk og mun eigandinn því væntanlega halda þeim. Hann telst hins vegar hafa gerst brotlegur við refsiákvæði vegna allra framangreindra bitvopna.

  1. apríl er 101. dagur ársins (102. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 264 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir:

1700 – Hvergi var messað á landinu þó páskadagur væri vegna mikillar snjókomu á norðan. Veturinn var því kallaður páskavetur.
1912 – Mánaðarlöngu verkfalli kvenna í fiskverkun í Hafnarfirði lauk með samningum. Þetta var fyrsta verkfall kvenna á Íslandi og jafnvel fyrsta skipulagða verkfallið.
1915 – Flækingurinn með Charlie Chaplin var frumsýnd.
1959 – Rannveig Þorsteinsdóttir fékk rétt til þess að flytja mál fyrir Hæstarétti fyrst kvenna.
1970 – Minkarækt hófst að nýju á Íslandi.

Dáin
1165 – Stefán 4., konungur Ungverjalands (f. um 1133).
1778 – Miklabæjar-Solveig, vinnukona á Miklabæ í Blönduhlíð (fyrirfór sér).
2007 – Kurt Vonnegut, bandarískur rithöfundur (f. 1922).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu