Íbúar á Reykjanesi boða til mótmæla í kvöld
Í gærkvöldi fannst brunalykt frá kísilverksmiðjunni United Silicon í nokkrum hverfum Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram í Víkurfréttum. Þar segir jafnframt að loftrör hafi sprungið í verksmiðjunni um klukkan 16 í gær. Á meðan viðgerð stóð yfir var slökkt á ofni verksmiðjunnar.
Kristleifur Andrésson, yfirmaður öryggis- og umhverfismála hjá United Silicon, segir í samtali við Víkurfréttir að viðgerðinni hafa lokið um klukkan 22 í gærkvöldi en í uppkeyrslu ofnsins gæti lykt hafa fylgt.
Boðað hefur verið til mótmæla klukkan 18 í kvöld við verksmiðjuna. Greint er frá mótmælunum á Facebook-síðunni Andstæðingar stóriðju í Helguvík. Þar segir einn talsmaður mótmælanna, „Komið og látið í ykkur heyra, sýnum að okkur er ekki sama, þetta er komið nóg við erum ekki tilrauna dýr!“