fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Reynt að bjarga þjóðargersemum

Listgluggar Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur liggja undir skemmdum

Kolbrún Bergþórsdóttir
Þriðjudaginn 11. apríl 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Miðað við fjölda þeirra sem leitað hefur verið til er óhætt að segja að söfnunin hafi í heild gengið frekar treglega til þessa,“ segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti. Verndarsjóður Skálholtsdómkirkju hóf nýlega að safna framlögum til viðgerða á listgluggum Gerðar Helgadóttur sem liggja undir skemmdum og altarismynd Nínu Tryggvadóttur. Leitað hefur verið eftir fjárframlögum bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum, en einnig var sótt um styrk í Húsafriðunarsjóð. Kristján Valur segir að svar við umsókninni í Húsafriðunarsjóð sé væntanlegt innan skamms. „Við munum ekki leggja af stað með viðgerð fyrr en séð verður að við náum endum saman,“ segir hann.

Gersemar í Skálholtsdómkirkju.
Listgluggar Gerðar Helgadóttur Gersemar í Skálholtsdómkirkju.

Gæti kostað 70 milljónir

Hann segir kostnaðinn geta orðið um 70 milljónir króna. Spurður hvar viðgerðir muni fara fram segir hann: „Bæði listgluggar Gerðar og altarismynd Nínu eru frá Oidtmann fyrirtækinu í Linnich í Þýskalandi (Dr. H. Oidtmann & Cie.). Fulltrúi þeirra, dr. Stefan Oidtmann, var kallaður til ráðgjafar og úttektar á ástandi glugganna fyrst árið 2010 og skilaði þá mjög ítarlegri skýrslu og kom síðan aftur árið 2014, þegar ákveðið hafði verið að ráðast í nauðsynlega viðgerð, og gerði þá nýja úttekt á ástandi glugganna og á mósaíkmynd Nínu, en í henni eru sprunguskemmdir sem urðu til í stóru Suðurlandsskjálftunum. Úttektin sýndi að ástand glugganna hafði verulega versnað milli 2010 og 2014.“

Þarf að taka alla glugga niður

Hversu miklar eru skemmdirnar á listgluggum Gerðar og hafa þær orðið á löngum tíma?

„Skemmdirnar eru að stærstum hluta tilkomnar vegna þess að bilið milli hlífðarglers og listglers var í upphafi haft of lítið og án loftunar. Þess vegna hefur alveg frá upphafi orðið til raki sem með tímanum veldur fúa í tréverki og tæringu í blýi og stuðningsrömmum. Þar að auki hafa glerflísar brotnað. Til þess að bregðast við þessu þarf að taka alla gluggana niður og fara yfir þá í verkstæðinu í Linnich, gera nýja ramma og setja þá upp að nýju með góðri loftun.“

Ef ekki tekst að safna nægu fé hvað þá?

„Það er ekki í boði. Þetta eru þjóðargersemar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi