fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Thomas Møller Olsen neitar að hafa myrt Birnu

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag

Kristín Clausen
Mánudaginn 10. apríl 2017 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Møller Olsen, sem var handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu á hvarfi Birnu Brjánsdóttur þann 18. janúar síðastliðinn, neitar því að hafa myrt hana. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í dag. Þá neitar Thomas að hafa flutt 23,4 kíló af hassi til Íslands. Ákæran var gefin út fyrir rúmri viku.

Huldi andlitið

Olsen huldi andlit sitt með handklæði á leiðinni inn og út úr réttarsalnum. Túlkur var viðstaddur þingfestinguna og túlkaði allt sem fram fór yfir á dönsku fyrir Thomas sem er grænlenskur.

Í ákærunni segir að höfða beri sakamál í Héraðsdómi Reykjaness á hendur Thomasi fyrir tvenns konar hegningarlagabrot.

Fyrir manndráp með því að hafa að morgni laugardagsins 14. janúar svipt Birnu Brjánsdóttur lífi.

Varpað í sjó eða vatn

Þar segir að ákærði hafi veist að Birnu í bifreið af gerðinni KIA RIO sem lagt var nálægt flotkví við enda hafnarkantsins í Hafnarfjarðahöfn og/eða á öðrum óþekktum stað, slegið hana ítrekað í andlit og höfuð, tekið hana kverkataki og hert kröfuglega að hálsi hennar og í framhaldinu, á óþekktum stað, varpað Birnu í sjó eða vatn, allt með þeim afleiðingum að Birna hlaut punktblæðingar í augnlokum, táru og glæru augnlokanna og innanvert á höfuðleður, þrýstingsáverka á hálsi, þar á meðal brot í skjaldkirtilsbrjóski, nefbrot og marga höggáverka á andlit og höfuð og drukknaði.

Einnig er Thomas ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot fyrir að hafa til umráða rúmlega 20 þúsund grömm af kannabisefnum sem hann hugðist flytja til Grænlands í ágóðaskyni.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar og að fíkniefnin verði gerð upptæk.
Af hálfu foreldra Birnu er þess krafist að ákærði greiði þeim miskabætur að upphæð 10.550.000 hvor, ásamt vöxtum. Einnig er þess krafist að ákærði greiði útfararkostnað að fjárhæð kr. 761.101 ásamt vöxtum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“