Engin hætta á ferðum segir Isavia – Má rekja til flugvélar sem var að koma frá Grænlandi
Mikil ringulreið skapaðist í Leifsstöð nú fyrir stundu þegar tilkynnt var í kallkerfi stöðvarinnar að rýma þyrfti flugstöðina og allir farþegar sem þar væru þyrftu að fara í gegnum öryggisleit á nýjan leik. Búast má við einhverju raski á flugi vegna þessa.
Samkvæmt upplýsingum frá Isavia var þó engin hætta á ferð og aðeins veirð að fara að ítrustu flugverndarkröfum.
„Ástæðan fyrir þessari rýmingu er að það var vél sem var að koma frá Grænlandi frá flugvelli sem stenst ekki alþjóðakröfur um öryggisleit. Það urðu á mistök hjá okkur að hún fór inn að vitlausu hliði. Farþegar vélarinnar blönduðust þá brottfararfarþegum og til að fara eftir öllum flugverndarreglugerðum er viðbragðið það að rýma þarf og leita alla aftur,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við DV.