„Daginn heldur áfram að lengja og áhrif sólarinnar aukast að sama skapi og allt verður vorlegra.“ Svona hljómar athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands núna í morgunsárið, en útlit er fyrir hæglætis veður víða um land í dag.
Nokkur vindur verður þó sunnantil á landinu, eða 8-15 metrar á sekúndu. Vindurinn blæs að austan. Í dag og næstu daga verður úrkomulítið verður þó lengst af og þokkalega milt, þó víða verði vægt næturfrost. „Dálitlar skúrir með austur- og suðurströndinni í dag, en stöku él inn til landsins. Annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Úrkomuminna um tíma í nótt, en annars svipað veður. Hiti 1 til 7 stig að deginum, en víða næturfrost.“