fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Skólastjóri Barnaskóla Hjallastefnunnar meinaði föður að sækja son sinn: „Ég er með sting í maganum, ég er svo hræddur.“

„Sorglegt mál,“ segir Margrét Pála – Starfsfólk tók sér stöðu fyrir aftan bifreið föðurins

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. mars 2017 09:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skólastjóri Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík reyndi á föstudaginn, ásamt öðru starfsfólki grunnskólans, að meina David Cross, þrítugum einstæðum föður, að sækja son sinn í skólann. Sonur Davids er sex ára og því í fyrsta bekk barnaskólans. David hafði ekki séð son sinn í fimm mánuði en að hans sögn hafði móðir hans hamlað umgengni hans allan þann tíma.

„Hún fór með son okkar til Indlands og var þar í fjóra mánuði. Á þeim tíma var hún að brjóta umgengnissamninginn sem var staðfestur hjá sýslumanninum í Reykjavík. Þar stendur skýrum stöfum að ég eigi rétt á að fá að umgangast son minn,“ segir David og réttir blaðamanni umræddan samning. Þar sést undirskrift frá sýslumanni og stimpill til þess að staðfesta það sem þar kemur fram.

Í samningnum um umgengni Davids við son sinn segir að „Barn dvelji hjá föður sínum aðra hvora helgi frá föstudegi til þriðjudags og mánudag þess á milli.“ Þá segir að barnið eigi að dvelja hjá föður helming af sumarleyfi samkvæmt dagatali leikskóla/skóla og einnig að barnið skuli dvelja hjá föður 25. desember og einnig talað um skiptingu á páskafríi.

David Cross segir að forsjárdeilan sé ógeðsleg og bitni langmest á syni sínum.
Ætlar ekki að gefast upp David Cross segir að forsjárdeilan sé ógeðsleg og bitni langmest á syni sínum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Sá á Facebook að sonurinn væri kominn til landsins

David vissi ekki að sonur sinn væri kominn til landsins fyrr en hann sá mynd af honum á Facebook-síðu Barnaskóla Hjallastefnunnar. Eftir að hafa ráðfært sig við lögfræðinga og sýslumann þá ákvað hann, í krafti þess samnings sem hann hafði í hendi og var staðfestur 4. apríl 2015, að sækja son sinn í skólann á föstudaginn en umræddur grunnskóli er við Nauthólsveg.

„Ég mætti á leikskólann og lét umsjónarkennara hans vita að ég væri kominn að sækja hann. Vá, hvað það var gott að sjá hann. Það sást líka á honum að hann hafði saknað mín, hljóp til mín eins og fætur toguðu. Það var yndislegt augnablik en þó aðeins augnablik því ég tók eftir því að aðrir starfsmenn þarna og þá sérstaklega skólastjórinn litu mig hornauga. Ég var þó ekki mikið að kippa mér upp við það enda svo hamingjusamur að sjá litla strákinn minn loksins. Ég tók saman fötin hans, klæddi hann í og síðan ætluðum við að ganga út,“ segir David en með honum í för var kærastan hans.

Vildi að hringt yrði á lögregluna

„Við erum komin út og erum að ganga að bílnum þegar ég heyri dyr grunnskólans opnast fyrir aftan okkur og það hlaupa einhverjir út. Ég lít við og sé skólastjórann ásamt tveimur öðrum starfsmönnum. Ég set son minn í bílsætið sitt og sný mér við. Þá heyri ég öskrað „Nei, nei, þú ert ekki að fara neitt.“ Það var þá skólastjórinn sem var mættur út á bílaplan og greip í bílhurðina og reyndi að ná til sonar míns. Ég lokaði hurðinni og það sem gerðist eftir, það sést allt á myndskeiðinu sem kærastan mín tók upp. Ég var að sjálfsögðu í miklu uppnámi en ákvað samt að vera rólegur og reyna að vinna úr þessu með starfsfólki skólans því það var með afrit af umgengnissamningnum og ætti að vita að ég átti rétt á að sækja son minn. Ég trúði þessu vart og vildi bara að það yrði hringt á lögregluna,“ segir David sem á þessum tímapunkti vildi koma barninu sínu út úr þeirri ringulreið sem hafði skapast á plani grunnskólans.

„Ég er hræddur. Kannski hringja þau á lögguna,“ heyrist í sex ára gömlum syni Davids sem þá var sestur í sætið sitt í bílnum. Það var greinilegt að atvikið hafði mikil áhrif á hann. Þá heyrist líka í kærustu Davids sem reynir að hughreysta barnið: „Þú þarft ekkert að vera hræddur. Pabbi hefur fullan rétt á að tala við þig og hitta þig. Þetta er allt í góðu.“ Á sama tíma endurtekur sonur Davids að hann sé hræddur. „Eru þeir að knúsast,“ segir sonur hans þegar David reynir að stjaka við einum af starfsmönnum grunnskólans sem hafði tekið sér stöðu fyrir aftan bílinn. „Ég er með sting í maganum, ég er svo hræddur,“ segir sonur Davids sem síðar segist hræddur um að skólastjórinn hringi á lögregluna.

„Ég er hræddur. Kannski hringja þau á lögguna“

Sex ára og óttasleginn

„Eruð þið búin að leysa þetta?“ heyrist sonur Davids segja síðan. Á meðan segist David hafa reynt að koma starfsfólki og skólastjóranum í skilning um að hann hefði rétt á að sækja son sinn og eiga með honum helgi. Hann mætti í raun, samkvæmt samningnum, vera með hann þangað til á þriðjudaginn.

„Ég vildi bara koma barninu mínu burt úr þessum aðstæðum og þess vegna bað ég starfsfólkið að færa sig. Ég ætlaði með son minn burt úr þessum aðstæðum og síðan væri hægt að ræða málið frekar, ef þess þyrfti. Á þessum tímapunkti var ég sjálfur farinn að biðja um að hringt yrði á lögregluna því ég vissi að ef hún kæmi á staðinn og sæi samninginn þá yrði mér leyft að fara með hann,“ segir David sem sést á myndskeiðinu leiðbeina kærustu sinni sem, að hans sögn, bakkaði löturhægt.

„Af hverju voru þau að rífast?“ spyr sonur Davids á meðan kærasta hans reynir áfram að hughreysta hann. „Þau vita bara ekki betur.“

Bæði David og starfsfólk grunnskólans hafði samband við lögregluna sem var fljót á staðinn og stöðvaði för þeirra.

Feginn að sjá lögregluna

„Ég var feginn að sjá lögregluna en það var sárt að horfa upp á son minn sem skildi ekkert í þessu. Lögreglumennirnir voru þrír og þeir fóru yfir samninginn og voru lengi í símanum að ræða við sýslumann og fleiri sem að málinu koma. Niðurstaðan var sú að ég mátti, lögum samkvæmt og samkvæmt staðfestum umgengnissamningi, sækja son minn í skólann þennan dag. Enn í dag á ég erfitt með að trúa því að starfsfólkið hafi með beinum hætti blandað sér í annars ömurlega forsjárdeilu sem barnið mitt þarf að upplifa að ósekju,“ segir David sem nú undirbýr lögsókn vegna málsins ásamt lögfræðingi sínum.

„Það á aldrei að gefast upp. Þetta er sonur minn. Ég mun aldrei gefast upp. Við hverju býst fólk? Að maður geti bara gleymt barninu sínu og étið ofan í sig alls kyns ólöglegar tálmanir? Nei. Það held ég ekki.“

David vill láta taka það fram að hann hefur búið á Íslandi frá því hann var sextán ára gamall. Hann á íslenska móður og er með íslenskan ríkisborgararétt og lítur á sig sem Íslending að öllu leyti. Einhverjir hafi haft áhyggjur af því, að sögn hans, að hann myndi flýja með son sinn úr landi en hvað það varðar segir David sjálfur: „Hvert ætti ég að fara. Ég á heima á Íslandi og sonur minn á heima á Íslandi.ׅ“

Margrét Pála Ólafsdóttir segir málið óendanlega sorglegt og harmar atvikið innilega.
Stofnandi Hjallastefnunnar Margrét Pála Ólafsdóttir segir málið óendanlega sorglegt og harmar atvikið innilega.

Mynd: © DV / Kristinn Magnússon

Ber að fylgja fyrirmælum forsjáraðila

„Þetta er óendanlega sorglegt mál og ég hvet alla foreldra til þess að leggja öll gögn á borðið, samtalið er mikilvægast og við verðum að vita hvernig í pottinn er búið,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, þegar DV ræddi við hana í gær, mánudag, um atvikið. Hún útskýrir að forsjáraðili, sem er móðir drengsins, sé sá sem þeim ber að vera í sambandi við. Hún líti málið alvarlegum augum.

„Í þessu tilviki hafði móðir drengsins, sem hefur forsjá, sagt við starfsfólk skólans að það mætti alls enginn annar sækja barnið nema hún. Það eru þau fyrirmæli sem okkur ber að fylgja nema annað liggi fyrir. Þarna á föstudaginn fær skólastjóri starfsmenn með sér þegar hann sér að verið er að sækja drenginn. Hún vildi ná tali af föðurnum sem setur drenginn í bílinn, veifar samanbrotnu A4-blaði og segist eiga rétt á að sækja hann.“

Var skólinn ekki með afrit af þessum umgengnissamningi?

„Ekki inni í skólanum, nei. Ég hef ekki upplýsingar um það og venjulega erum við ekki með þetta uppi á borði og það kemur mér á óvart ef svo er. Að sögn skólastjórans var strax hringt í forsjáraðilann, móðurina, sem ítrekaði að ekki mætti sækja barnið,“ segir Margrét Pála og bætir við að starfsfólkið hafi ítrekað beðið um að fá að tala við föðurinn.

Margrét Pála, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, segir enga eftirmála af atviki föstudagsins og að faðirinn hafi, samkvæmt úrskurði sýslumanns, rétt til að sækja son sinn í leikskólann aðra hverja helgi.
Barnaskóli Hjallastefnunnar Margrét Pála, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, segir enga eftirmála af atviki föstudagsins og að faðirinn hafi, samkvæmt úrskurði sýslumanns, rétt til að sækja son sinn í leikskólann aðra hverja helgi.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Gaf misvísandi upplýsingar

„Þau standa vissulega aftan við bílinn en þar óskuðu þau eftir því að fá að sjá pappírinn. Síðan er byrjað að bakka bílnum og að það sé valið – að bakka bílnum á starfsfólk skólans – setur maður spurningarmerki við, en þegar öllu er á botninn hvolft þá ber starfsfólki að fylgja fyrirmælum frá forsjáraðila eða -aðilum. Um leið og skólastjórinn fékk að lesa þau gögn sem faðirinn hafði með sér var afskiptum hætt. Í ljós kom, við yfirferð þessara gagna, að faðirinn hefði heimild til umgengni frá föstudegi og fram á þriðjudag og hér eru engin eftirmál. Þvert á móti. Hann kom með drenginn á leikskólann í dag (mánudag) og sótti hann síðan,“ segir Margrét Pála sem hefur söguna frá starfsfólki skólans, þar sem hún var ekki stödd þarna sjálf. Móðir drengsins hafði því gefið skólanum misvísandi upplýsingar.

Ef litið er á myndskeiðið þá sést að afskiptum lauk ekki þegar búið var að fara yfir umgengnissamninginn því starfsmaður grunnskólans sést hlaupa á eftir bílnum þar til lögreglan stöðvar för hans.

„Ég endurtek að þetta er óendanlega sorglegt og grunnskólinn á ekki að vera stuðpúði á milli deiluaðila. Barnið á að vera í fyrsta, öðru og þriðja sæti og ég harma þetta innilega. Þá hvet ég líka alla til þess að leggja fram viðeigandi pappíra og halda forsjárdeilum sínum utan skólans og ekki í kringum barnið,“ segir Margrét Pála.

Er þetta fordæmalaust atvik?

„Fordæmalítið en klípan hjá öllu skólafólki er sú að við fylgjum fyrirmælum forsjáraðila og við kjósum ekkert fremur en að barn eigi frábæra umgengni við báða foreldra. Það er okkar afstaða.“


Hér fyrir neðan má sjá myndbandið:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt